Væntingar sauðfjárbænda til nýrrar ríkisstjórnar
Niðurstöður kosninga til Alþingis 25. september voru skýrar. Ríkisstjórnarflokkarnir styrktu stöðu sína og eru, þegar þetta er skrifað, í samtali um áframhaldandi stjórnarsamstarf. Sauðfjárbændur hafa væntingar um að ný ríkisstjórn bregðist með skjótum hætti við þeirri stöðu sem greinin er í. Rekstur sauðfjárbúa hefur verið afar erfiður á undanförnum árum, eins og myndin hér fyrir neðan gefur skýrt til kynna.
Myndin hér fyrir ofan sýnir þróun framleiðslukostnaðar, afurðatekna og opinbers stuðnings fyrir árin 2014–2019 reiknað á hvert kg af innlögðu dilkakjöti. Gögnin eru byggð á verkefni RML um rekstur og afkomuvöktun sauðfjárbúa en eru fengin úr skýrslu LbhÍ sem kom út fyrr á þessu ári. Afurðatekjur eru tekjur af seldu dilkakjöti, kjöt af fullorðnu fé, seldri ull, heimanot og seldu líffé.
Opinberar greiðslur eru tekjur vegna greiðslumarks, beingreiðslna í ull, gæðastýringargreiðslur, býlisstuðningur og svæðisbundinn stuðningur. Punktarnir fyrir ofan súlurnar gefa til kynna áætlaðan framleiðslukostnað hvers árs. Í gögnum RML er framleiðslukostnaður reiknaður sem heildarútgjöld án fjármagnsliða og afskrifta. Þá er launakostnaður í gögnum RML mjög hóflegur. Hér er farin sú leið að áætla fjármagnsliði, afskriftir og leiðréttingu á launalið með því að bæta 20% ofan á framleiðslukostnað eins og hann er settur fram í skýrslu LbhÍ.
Afkomuvöktun sauðfjárræktar 2017-2019:
https://www.rml.is/static/files/RML_Frettir/2021/afkomuvoktun-2017_2019-yfirlit.pdf
Afkoma sauðfjárræktar á Íslandi og leiðir til að bæta hana:
https://www.lbhi.is/sites/lbhi.is/files/gogn/vidhengi/rit_lbhi_nr_142.pdf
Fyrr á þessu ári kom út skýrsla á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, unnin af Landbúnaðarháskóla Íslands. Í skýrslunni er lögð fram aðgerðaráætlun til bættrar afkomu sem má draga saman svona:
- Að halda áfram að leita leiða til að draga úr framleiðslukostnaði
- Að ná hærra afurðaverði til bænda, með því að:
- Stuðla að hagræðingu í rekstri sláturhúsa
- Hagkvæmara fyrirkomulagi í útflutningi
Það er krafa sauðfjárbænda að horft verði til þessara tillagna þegar kemur að því að skapa greininni rekstrarskilyrði sem tryggir bændum viðunandi afkomu af sínum rekstri.
Unnsteinn Snorri Snorrason
verkefnastjóri hjá Bændasamtökum Íslands