Forstjóri Matís seldi lambakjöt af heimaslátruðu á bændamarkaði á Hofsósi
Bændur á bænum Birkihlíð í Skagafirði slátruðu lömbum heima í síðustu viku. Slátrunin fór fram í samstarfi við Matís og var framkvæmd hennar í samræmi við verklag sem Matís hefur lagt til að gildi um örsláturhús. Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís, seldi síðan kjötafurðir af lömbunum á bændamarkaði á Hofsósi síðastliðinn sunnudag.