Halldór Hafliðason hlaut bronsið
Halldór Hafliðason, matreiðslunemi í Menntaskólanum í Kópavogi, hlaut bronsverðlaun á Ólympíuleikum ungkokka sem haldin var fyrir skömmu. Honum til aðstoðar voru Kristinn Þór Gautason og Dagur Gnýsson, auk Ægis Friðrikssonar þjálfara. Halldór er á námssamningi hjá veitingahúsinu Tides á Marriott Edition hótelinu.