Góður árangur og bæting í ræktunarstarfinu á milli ára
Ár hvert halda búgreinafélög í Austur-Húnavatnssýslu sameiginlega árshátíð fyrir bændur héraðsins og veita þar viðurkenningar fyrir góðan árangur síðastliðins árs. Vegna covid-19 var ekki haldin búgreinahátíð en verðlaun voru þó veitt hjá Félagi sauðfjárbænda í A-Hún. með viðhöfn.