Skógræktin tók til starfa 1. júlí
Ný skógræktarstofnun, Skógræktin, tók til starfa 1. júlí síðastliðinn og varð til við sameiningu Skógræktar ríkisins og landshlutaverkefnanna í skógrækt. Af því tilefni var efnt til skógargöngu á Silfrastöðum í Skagafirði en um 70 manns mættu við athöfn sem haldin var til að fagna þessum áfanga.