Duglegur að hjálpa til heima við bústörf
Þórhallur Sölvi er ljúfur og glaðvær drengur og húmoristi mikill. Hann er duglegur að hjálpa til heima við bústörf og almenn heimilisstörf og áhugamál hans eru að teikna, spila fótbolta og leika sér við dýr og menn.
Nafn: Þórhallur Sölvi Maríusson.
Aldur: 9 ára.
Stjörnumerki: Hrútur.
Búseta: Hallgilsstaðir 1, Langanesbyggð.
Skóli: Grunnskólinn á Þórshöfn.
Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Leika við vini mína og að teikna.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Skjaldbaka og hundar.
Uppáhaldsmatur: Pitsa.
Uppáhaldshljómsveit: Engin sérstök hljómsveit í uppáhaldi, heldur er ég alæta á tónlist.
Uppáhaldskvikmynd: TMNT.
Fyrsta minning þín? Þegar ég lék mér sem riddari á kindinni minni Gæfu.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Já, ég æfi fótbolta og frjálsar íþróttir og spila á blokkflautu.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Vísindamaður af einhverju tagi.
Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Synda í íslenskum sjó.
Gerir þú eitthvað skemmtilegt í sumar? Hjóla til Þórshafnar, fara reglulega á hestbak og leika við vini mína.
Næst » Ég skora á Tinnu Marlis Gunnarsdóttur, Fjallalækjarseli, Svalbarðshreppi, að svara næst.