Í larí lei best!
Camilla Von er hress og kát stúlka sem hafði afar gaman af því að svara spurningunum.
Nafn: Camilla Von Gunnarsdóttir Berg.
Aldur: 5 ára en verð 6 ára þegar Jesú á afmæli.
Stjörnumerki: Steingeit.
Búseta: Á sko heima hjá mömmu og pabba á Húsavík.
Systkini: Brynjar Freyr Gunnarsson Berg, 2ja ára.
Skóli: Borgarhólsskóli á Húsavík.
Skemmtilegast í skólanum: Frímínútur.
Uppáhaldsdýr: Kisinn minn, Húgó, og hundurinn minn, Monsa og Ljón.
Uppáhaldsmatur: Pasta sem mamma gerir.
Uppáhaldslag: Í larí lei.
Uppáhaldsbíómynd: Madagaskar.
Fyrsta minning: Þegar ég var eins árs á Tenerife og ég vildi fara í bað sem var sundlaug.
Hver eru áhugamálin þín: Fótbolti og að borða nammi.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór: Listakona og mála mikið.
Hvað er það mest spennandi sem þú hefur gert: Fara í fallturninn í Húsdýragarðinum.
Camilla skorar á Freyju Rún Ásgeirsdóttur, frænku sína, að svara næst.