Lömbin eru uppáhalds
Sigurður Gísli á tvö systkini, eldri systur og yngri bróður. Hann býr á Kirkjubæjarklaustri II og foreldrar hans eru sauðfjárbændur þar.
Honum finnst mjög skemmtilegt í fótbolta og hjálpar stundum heima við búskapinn og heimilisstörfin.
Nafn: Sigurður Gísli Sverrisson.
Aldur: 12 ára.
Stjörnumerki: Krabbi.
Búseta: Kirkjubæjarklaustur II.
Skóli: Kirkjubæjarskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Náttúrufræði og samfélagsfræði.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Lömb.
.
Uppáhaldsmatur: Lambalæri.
Uppáhaldshljómsveit: Queen.
Uppáhaldskvikmynd: Þór ragnarök.
Fyrsta minning þín? Að vera með jólaköttinn frá leikskólanum Kærabæ.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Ég æfi fótbolta og blak.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Veit það ekki.
Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Að fara í alla rússíbanana í Legolandi síðasta sumar.
Hvað ætlar þú að gera skemmtilegt um jólin? Opna pakka.
Næst » Sigurður Gísli skorar á Stellu Björk Harðardóttur, Efri-Ey I, að svara næst.