Með framtíðina fyrir sér
Hann Greipur Guðni er hress og kátur níu ára strákur sem þykir skemmtilegt að kíkja á sveitabæi.
Nafn: Greipur Guðni Hilmarsson.
Aldur: 9 ára. Stjörnumerki: Hrútur.
Búseta: Reykholt, Biskupstungum.
Skóli: Bláskógaskóli.
Skemmtilegast í skólanum: Frímínútur.
Áhugamál: Fótbolti.
Tómstundaiðkun: Kíkja á sveitabæi.
Uppáhaldsdýrið: Ljón kom fyrst upp en íslenskt er geit.
Uppáhaldsmatur: Hamborgari og grjónagrautur.
Uppáhaldslag: Króatía og Finnland í Eurovision 2023.
Uppáhaldslitur: Fjólublár.
Uppáhaldsmynd: King Kong og Jurassic Park.
Fyrsta minningin: Þegar ég hélt að brúnn blettur í sætinu á gröfunni hans pabba væri kúkur eftir að hann var stoppaður af löggunni fyrir hraðakstur.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur gert: Fara til Tenerife og óvissuferð til Vestmannaeyja.