Það klikkaðasta að drekka ógeðsdrykk
Katla Björk er hress og jákvæð stelpa, sem býr í sveit. Hún á bróður, Davíð Bjarma (13), og fullorðinn fósturbróður, hann Sigurð Alexander.
Þótt hún búi í sveit er hún samt ekki bóndi, nema hún þarf stundum að fóðra nokkrar hænur fyrir mömmu sína.
Nafn: Katla Björk Víkingsdóttir.
Aldur: 9 ára.
Stjörnumerki: Í tvíburamerkinu.
Búseta: Á heima í Sandfellshaga 2, Öxarfirði.
Skóli: Lundarskóli, Öxarfirði.
Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Stærðfræði.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Kettir eru uppáhaldsdýrin.
Uppáhaldsmatur: Lambasnitsel.
Uppáhaldshljómsveit: Amabadama.
Uppáhaldskvikmynd: Uppáhaldsmyndin er E.T.
Fyrsta minning þín? Þegar við vorum í fjöruferð og ég var á háhest á pabba.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Katla er bæði að læra á gítar og söng.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Hönnuður.
Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Það klikkaðasta var að drekka ógeðsdrykk.
Ætlar þú að gera eitthvað skemmtilegt á nýju ári? Ætla til útlanda.
Næst » Katla skorar á Bergstein Jökul Jónsson, Reistanesi, að svara næst.