Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Elísabet heitin Englandsdrotting og kryddpían Victoria Beckham.
Elísabet heitin Englandsdrotting og kryddpían Victoria Beckham.
Líf og starf 14. október 2022

Drottningarlegur virðuleiki í hvívetna

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Með haustinu er ágætt að horfa aðeins í spegilinn og taka stöðuna. Nú fer í hönd tími þar sem sólarkysst útlit sumarsins er á undanhaldi og því rétt að bregðast við til þess að vera nú besta útgáfan af sjálfum sér þó ekki væri nema að utanverðu.

Það er þó ekki úr vegi að gæta að innri manni líka ef tími gefst, en margir eiga það til að vilja leggjast undir feld þegar vindar blása.

Þegar byrjað er á því að huga að ytra byrðinu er rétt að byrja efst og taka stöðuna á hárinu. Hár vill gjarnan verða dekkra og þurrara með haustinu, jafnframt því að missa gyllingu þessara örfáu sólardaga sumarsins. Þá er ágætt að koma við á hárgreiðslustofu og biðja um djúpnæringarmaska og nokkrar örfínar strípur svona rétt til frískingar. Þeim sem vilja, og helst þeim sem hafa þykkt hár, er bent á að hita örlitla olíu, til dæmis kókosolíu, og bera í endana á hárinu. Næringu má líka setja, ef djúpnæring heima á við. Vilja þá sumir setja plastpoka yfir hárið til þess að loka hitann inni í einhvern tíma. Hreinsa svo vel að því loknu.

Ljómandi húð

Næst má athuga húðina, og þá fyrirbyggja áhrif kuldans sem vill smjúga um merg og bein til viðbótar við að minnka rakastig hennar. Þar kemur ýmislegt til greina. Heitt vatn með sítrónu og ef til vill hunangi er öllum hollt á morgnana, svo og vatns- og tedrykkja yfir daginn, enda ljómar húðin ef við gætum þess að innbyrða nægan vökva.

Annað sem gott er að taka sér fyrir hendur er að fara í svokallað infrarautt sánabað. Svipað venjulegu sánabaði, nema í því infrarauða er geislum beint að líkamanum, um fjóra sentimetra inn í húðina og örvar þannig losun skaðlegra eiturefna er við mannfólkið söfnum ómeðvitað í okkur. Svitinn er myndast í kjölfarið er einmitt ein náttúrulegasta leið líkamans til þess að losna við alla óværu og eftir heimsókn í slíkt sánubað ættum við því að vera nokkuð góð.

Fyrir þau okkar sem ekki eigum kost á heimsókn í svo nýstárlegt sánubað má að sjálfsögðu notast við það gamla góða sem er í mörgum sundlauganna og einhverjum heimahúsum – og að sama skapi útvíkkar það blóðæðarnar og eykur blóðrásina. Gefur þannig frísklegt og gott útlit. Nú eða hreinlega hita vatn í skaftpotti, setja viskustykki yfir höfuðið og halla sér yfir gufuna um stund. Gerir sama gagn.

Skrúbbar af ýmsu tagi
 Hér má sjá einn vinsælasta skrúbb veraldar þessa stundina, eftirlæti þeirra konungbornu er kemur að naglalökkum, svo og augnblýant þeirra sem vilja virðast sem ferskastir.

Jæja, annað sem má dunda sér við í heimahúsum er að skrúbba húðina vel og vandlega ef ekki er haldið á snyrtistofur. Alls kyns dýra og smarta skrúbba er auðvitað hægt að versla sér en svo má einnig nýta það sem hendi er næst. Sykur, salt og kaffikorgur eru vinsæl til þessa, borið þá á húðina í baði eða sturtu og nuddað vel. Sumir kjósa að blanda olíu saman við og jafnvel sameina allt þrennt. En þetta má leika sér með og finna eigin blöndu.

Ef fólk hefur frekar áhuga á skrúbbum settum saman af öðrum er ágætt að líta á vefsíðuna www. thedetoxmarket.com.

Þar má meðal annars finna vistvænar vörur frá fyrirtækinu C & The Moon, en fá þær afar góð meðmæli viðskiptavina sinna, þá sérstaklega líkamsskrúbburinn Malibu made Body Scrub.

Með drottningar að fyrirmynd

Augnsvipinn má hressa með nýjustu vöru frú Victoriu Beckham sem gerði garðinn frægan síðari hluta tíunda áratugarins með hljómsveitinni Spice Girls. Hefur hún haft sig í frammi síðan þá sem fatahönnuður, en árið 2019 kynnti hún á markað sína fyrstu snyrtivörulínu, nefnda Victoria Beckham Beauty.
Er hér um að ræða svokallaðan augnblýant, rjómalitan sem á að nota á vatnslínu augans, eða barmana og kalla þannig fram aukinn skýrleika og hvítu augnanna.

Vegna þess að augnblýanturinn er ekki hvítur heldur kremlitaður er birtan mild og náttúruleg og ber að gæta þess fyrir þá sem ætla af stað með beinhvítan blýant.

Að lokum má ekki gleyma því sem gleymist gjarnan – höndunum.

Bera gott krem á hendurnar, handarbökin og neglurnar – setja svo punktinn yfir i-ið með því að taka sér Elísabetu Bretadrottningu heitna sér til fyrirmyndar. Þannig var, að þau ár er Elísabet ríkti sem drottning, var einungis einn litur af naglalakki sem henni þótti viðeigandi að bera.

Var það liturinn Ballet Slippers frá merkinu Essie, en sá, auk annars er kallaður er Madimoselle, bera vott um snyrtimennsku og fágun.

Eða eins og kom fram í bréfi frá hárgreiðslukonu Elísabetar drottningar til fyrirtækisins árið 1989 „... er þetta eini liturinn sem hennar hátign kýs að bera“ og stóðst það í valdatíð hennar, allar götur fram til dauðadags.

Verum því svolítið fáguð þó ekki sé nema til heiðurs þessari merku konu – lökkum neglurnar með vandvirkni og stöndum keik þótt hárið fari fjandans til í rokinu.

Skylt efni: tíska

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 15. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn er eitthvað órór þessa dagana enda einhver stífla á verkefnum í krin...

Gerum okkur dagamun
Líf og starf 12. júlí 2024

Gerum okkur dagamun

Nú er ekki seinna vænna en að fara að leggja línurnar fyrir sumarið og með það t...

Bænder
Líf og starf 12. júlí 2024

Bænder

Sumir fara á Tinder. Aðrir hafa ekki tíma í slíkt vegna anna í búskapnum. Hér, k...

Vættafundur á Eyjabökkum
Líf og starf 10. júlí 2024

Vættafundur á Eyjabökkum

Orðsins list kemur að þessu sinni frá Oddbjörgu Sigfúsdóttur.

Sumarkveðja
Líf og starf 10. júlí 2024

Sumarkveðja

Nú þegar lífið kviknar með sumrinu og golan leikur við kinn, skulum við gleðjast...

Himbrimi
Líf og starf 9. júlí 2024

Himbrimi

Himbrimi er nokkuð stór vatnafugl og er einn af einkennisfuglum íslenskra heiðav...

Sumarsveiflan 2024
Líf og starf 8. júlí 2024

Sumarsveiflan 2024

Áherslur tískunnar fara nokkuð vítt og breitt þetta árið en nú þegar er farið að...

Dugur og elja ofar öllu
Líf og starf 8. júlí 2024

Dugur og elja ofar öllu

Eitt þeirra mætu kvenfélaga sem hér á landi sitja er Kvenfélag Hringsins sem hef...