Ágúst á Læk nýr stjórnarformaður Auðhumlu
Á fundi stjórnar Auðhumlu í gær lét Egill Sigurðsson frá Berustöðum í Ásahreppi af störfum sem formaður stjórnar Auðhumlu og Ágúst Guðjónsson, bóndi á Læk í Flóahreppi, tók við.
Egill hafði gegnt starfi formanns í rúm tíu ár, en Ágúst var kosinn í stjórn Auðhumlu á síðasta aðalfundi félagsins 27. apríl 2018.