Berin best úr eigin garði
Ber eru góð á bragðið, það er gaman að rækta þau og það er auðveldara en marga grunar. Í hlaðvarpsþætti dagsins af Ræktaðu garðinn þinn, fjallar Vilmundur Hansen um ber.
Flestar berjaplöntur gefa betur af sér séu þær ræktaðar í frjósömum og deigum jarðvegi sem blandaður hefur verið með lífrænum áburði og á sólríkum og skjólgóðum stað. Ber úr eigin garði eru góð í munninn beint af plöntum eða í saft, sultur og til víngerðar.
Hægt er að hlusta á öllum helstu streymisveitum og hér að neðan: