Grasið í garðinum
Fátt er yndislegra en ilmurinn af nýslegnu grasi á fallegum sumardegi. Til þess að grasflötin verði falleg þarf hún góðan undirbúning, áburð og umhirðu. Grasflöt í paradís er lávaxinn og hægvaxta, þekkur vel og hefur þétt rótarkerfi, grænkar snemma á vorin og sölnar seint á haustin og hefur fallegan dökkgrænan lit.
Vilmundur Hansen fjallar um gras í 10. þætti af Ræktaðu garðinn þinn á Hlöðunni, hlaðvarpi Bændablaðsins.