Jón Gnarr nær vopnum sínum á ný
Nýr hlaðvarpsþáttur Kaupfélagsins er loksins kominn í loftið eftir nokkurt hlé. Kaupfélagsstjórinn Jón Gnarr dregur ekki af sér að segja frá því sem hefur á daga hans drifið síðustu vikur. Boltaleikur við hundinn Klaka dró dilk á eftir sér eins og Jón rekur ítarlega í þættinum.
„Ég er hérna með tvö þéttskrifuð blöð með punktum,“ sagði Jón þegar hann hlammaði sér í kaupfélagsstjórastólinn í hlaðvarpsstúdíói Bændablaðsins, lúinn eftir inntöku verkjalyfja, bakmeiðsli og liðskrið síðustu vikna.
Hægt er að hlusta á boðskap Kaupfélagsstjórans á öllum helstu hlaðvarpsveitum og í spilaranum hér undir.