Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Tuttugu bændur frá sautján býlum sóttu kynningarfund um búskaparskógrækt á Gauksmýri. Greinilegur áhugi er meðal bænda á verkefninu enda margt að vinna með því að flétta saman skógrækt og hefðbundnum búgreinum.
Tuttugu bændur frá sautján býlum sóttu kynningarfund um búskaparskógrækt á Gauksmýri. Greinilegur áhugi er meðal bænda á verkefninu enda margt að vinna með því að flétta saman skógrækt og hefðbundnum búgreinum.
Mynd / Johan Holst á vef Skógræktarinnar
Fréttir 7. mars 2017

Mikill áhugi á búskaparskógrækt meðal bænda

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir
Tuttugu bændur af sautján býlum í Húnaþingi vestra sóttu nýverið kynningarfund um búskaparskógrækt sem Skógræktin hélt í sveitarfélaginu en mikill áhugi virðist meðal bænda á verkefninu að því er fram kemur á vef Skógræktarinnar. 
 
Sigrún Magnúsdóttir, þáverandi  umhverfisráðherra, fól Skógræktinni í október að annast þróunar- og átaksverkefni í búskaparskógrækt í Vestur-Húnavatnssýslu. Hugtakið búskaparskógrækt er tilraun til að íslenska það sem á ensku hefur verið kallað agroforesty en fleiri útgáfur hafa heyrst, svo sem skógarbúskapur, skógarlandbúnaður, landbúnaðarskógrækt svo dæmi séu tekin. „Þessa búskaparaðferð má skilgreina sem svo á einfaldan hátt að það sé sjálfbær landnýting  þar sem skóg- eða trjárækt er á sama svæði og annar búskapur og afurðir búsins komi jafnt úr skóginum sem úr akuryrkju eða kvikfjárrækt,“ segir í frétt um málið.
 
Framlagið nemur 11 milljónum króna
 
Verkefninu fylgir 11 milljóna króna fjárveiting og þar af eru sjö milljónir ætlaðar til beinna aðgerða eða framkvæmda. Aðgerðir sem breytt geta hefðbundnum búskap í búskaparskógrækt eða skógarbúskap geta verið þessar meðal annars: Heildstætt skjólbeltakerfi, skjól­lundur, skjólskógar eða skjólfangarar, hagaskógur eða akurskógur.
 
Allnokkur reynsla hefur fengist víða hérlendis af þessum ræktunarflokkum sl. 17 ár í starfi bænda með samninga við Landshlutaverkefni í skógrækt, sem nú eru hluti af nýrri stofnun, Skógræktinni. Því þykir óþarfi að finna upp hjólið, fremur að smíða hjól sem hentar. Í því skyni er ætlunin að skoða núverandi stuðningskerfi við skógrækt á lögbýlum og hvort móta megi úr því aðgengilegra form en tíðkast hefur fyrir bú í fullum rekstri. Verkefninu verður  eingöngu beint að jörðum í rekstri.
 
Til þess að vel megi til takast hefur Skógræktin óskað eftir að settur verði upp formlegur samstarfs­vettvangur nokkurra aðila, Skógræktarinnar, Búnaðar­s­ambands Húnaþings og Stranda, Sveitarfélagsins Húnaþings vestra og jafnvel fleiri aðila. Í því verður unnið nánar á næstunni.
 
Styðja við hefðbundinn búskap
 
Á fundinum sem haldinn var á Gauksmýri í Línakradal komu tuttugu bændur úr héraðinu frá sautján bújörðum og var greinilegt að áhugi þeirra á verkefninu var mikill. Aðferðir búskaparskógræktar geta stutt mjög við hefðbundinn búskap, veitt skjól fyrir skepnur, ekki síst lambfé á vorin, skýlt túnum og öðrum ræktarlöndum og þar með aukið bæði frjósemi og uppskeru, breytt snjóalögum og skýlt húsum svo minni þörf verður á kyndingu og þannig mætti áfram telja. Með tímanum myndast líka timburauðlind á búunum. Fyrstu afurðirnar verða sveppir, girðingastaurar og trjákurl svo eitthvað sé nefnt en síðar meir einnig smíðaviður eða iðnviður sem eykur tekjur búsins og fjölgar störfum í héraði. Í vel grónum sveitum eru einnig auknir möguleikar til ýmissar annarrar starfsemi, hvort sem það er ræktun eða kvikfjárrækt, ferðaþjónusta eða hvers kyns önnur nýsköpun.
 
Skógræktin fól Sæmundi Þorvaldssyni skógfræðingi stjórn þessa verkefnis og honum til fulltingis er Johan Holst, skógræktarráðgjafi Skógræktarinnar í Húnavatnssýslum. Í kjölfar fundarins geta áhugasamir bændur nú sótt um að gerast þátttakendur í þessu þróunarverkefni um búskaparskógrækt.
Drómasýki í hrossum
Fréttir 13. maí 2024

Drómasýki í hrossum

Drómasýki er vaxandi vandamál í íslenskri hrossarækt. Til stendur að stofna star...

Steypan í Þverárrétt rannsökuð
Fréttir 13. maí 2024

Steypan í Þverárrétt rannsökuð

Úlfheiður Embla Ásgeirsdóttir framkvæmdi rannsókn á gæðum steypunnar sem notuð v...

Nýtt verknámshús byggt á Sauðárkróki
Fréttir 8. maí 2024

Nýtt verknámshús byggt á Sauðárkróki

Verknámshús Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra (FNV) á Sauðárkróki mun stækka ve...

Torfæra til styrktar björgunarsveitinni
Fréttir 7. maí 2024

Torfæra til styrktar björgunarsveitinni

Laugardaginn 11. maí fer hin árlega Sindratorfæra fram við Gunnarsholtsveg rétt ...

Nýtt erfðapróf fyrir bógkreppu í sjónmáli
Fréttir 6. maí 2024

Nýtt erfðapróf fyrir bógkreppu í sjónmáli

Í sjónmáli er nýtt erfðapróf til greiningar á arfberum erfðagallans sem veldur b...

Jarðgerð á lagernum
Fréttir 3. maí 2024

Jarðgerð á lagernum

Krambúðin í Mývatnssveit er nú með jarðgerðarvél fyrir lífrænan úrgang í verslun...

Fyrsti skipulegi raforkumarkaður landsins
Fréttir 2. maí 2024

Fyrsti skipulegi raforkumarkaður landsins

Opnuð hefur verið íslensk raforkukauphöll, sú fyrsta á Íslandi og með það að mar...

Vöktun íslenskra skóga viðamest
Fréttir 2. maí 2024

Vöktun íslenskra skóga viðamest

Á sviði rannsókna og þróunar hjá Landi og skógi eru fjölmörg verkefni og þeirra ...