Rarik bætir viðskiptavinum tjón vegna rafmagnsleysis
Rarik hefur gefið út tilkynningu á vefsíðu sinni þar sem fram kemur að fyrirtækið muni koma til móts við þá viðskiptavini sem urðu fyrir rafmagnsleysi í illviðrinu 10. des. sl. Hægt er að sækja um endurgreiðslu á kostnaði vegna olíu- og gasnotkunar við framleiðslu á rafmagni eða vegna upphitunar. Þá mun Rarik að venju, eins og segir í tilkynningu, bæta viðskiptavinum tjón á rafbúnaði sem verður vegna spennusveiflna í rafmagnstruflunum.
Umsóknareyðublöð fyrir bætur vegna keyrslu á varaaflsvélum og vegna tjóns á búnaði er að finna á vef Rarik.