Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
SAH Afurðir á Blönduósi.
SAH Afurðir á Blönduósi.
Mynd / MÞÞ
Fréttir 23. janúar 2019

SAH Afurðir greiða 12 prósenta álag

Höfundur: smh

Stjórn SAH Afurða hefur ákveðið að greiða 12 prósent álag á áður auglýst verð fyrir dilkakjöt í síðustu sláturtíð. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef SAH Afurða 21. janúar. Þar með eru afurðastöðvarnar orðnar þrjár sem hafa ákveðið að greiða slíka viðbót, en sem kunnugt er var tilkynnt um slíka hækkun á dögunum fyrir Kjötafurðastöð Kaupfélags Skagfirðinga og Sláturhús KVH ehf. (SKVH).

Í tilkynningum frá KS og SKVH kom fram að ákveðið hefði var að greiða uppbætur til sauðfjárbænda, 6,04 prósent á innlegg í september og október og 10 prósent á innlegg ágústmánaðar, sem slátruðu hjá þessum afurðastöðvum. Þetta hefur þegar verið greitt.

SAH Afurðir rétta úr kútnum

Í tilkynningunni á vef SAH Afurða er haft eftir Eiði Gunnlaugssyni stjórnarformanni Kjarnafæðis, sem er eigandi SAH Afurða, að afar ánægjulegt sé að fyrirtækið hafi rétt svo mikið úr kútnum eftir mjög erfið ár að mögulegt sé að hækka greiðslur til bænda. Álagið verður greitt 8. febrúar.

„Þegar við tókum fyrirtækið yfir var það varla rekstrarhæft – nánast að hruni komið. Margir bændur áttu þá háar fjárhæðir inni hjá félaginu og segja má að hvert áfallið hafi rekið annað 2015 og 2016; kjötverð lækkaði á markaði, gærur og aðrar aukaafurðir voru nánast óseljanlegar og krónan styrktist. Það féll ekkert með okkur,“ segir Eiður. „Vegna alls þessa urðum við að taka erfiðar ákvarðanir, meðal annars að greiða lægra afurðaverð en við hefðum kosið, en þau skref voru stigin til þess að verja hagsmuni bænda til lengri tíma litið, og til þess að tryggja okkur aðgang að hráefni.  Þetta voru sársaukafullar aðgerðir en því miður nauðsynlegar. Með mikilli vinnu starfsmanna og viðskiptabanka okkar, Íslandsbanka, tókst að afstýra því að félagið færi í þrot. Reksturinn lagaðist mikið árið 2017 og eftir síðasta ár er viðsnúningurinn orðinn það mikill að við getum sem betur fer greitt bændum álag á innleggið frá því í haust. Með þessu er ég ekki að segja að reksturinn sé kominn á einhverja beina braut, hann er ennþá brothættur og eigið fé félagsins er enn neikvætt. En mikil breyting hefur orðið til batnaðar.“

Eiður segir að leitað hafi verið til Byggðastofnunar á sínum tíma, þegar hætta var á að SAH færi hreinlega í þrot. „Við lögðum mikla vinna í að fá aðstoð, en þar á bæ var ekki áhugi fyrir því. Okkur var tjáð að eins væri hægt að henda peningunum út um gluggann eins og að lána okkur. Íslandsbanki, hefur hins vegar alltaf staðið með okkur eins og klettur og fyrir það ég er mjög þakklátur,“ segir Eiður á vef SAH Afurða.

Hann kveðst einnig, og ekki síður, mjög þakklátur bændum fyrir trygglyndi þeirra. „Þeir hafa staðið með okkur á erfiðum tímum síðustu misseri og sýnt aðdáunarverða samstöðu á meðan við gátum ekki greitt þeim það verð fyrir afurðir sem við hefðum sannarlega viljað. Þess vegna er einstaklega ánægjulegt að fyrirtækið sé nú komið í þá stöðu að geta loks hækkað greiðslur til bænda,“ segir Eiður Gunnlaugsson.

 

Fréttin hefur verið uppfærð.

Ráðuneytið svarar ESA um óvissuatriði
Fréttir 15. júlí 2024

Ráðuneytið svarar ESA um óvissuatriði

Matvælaráðuneytið segir í svari við fyrirspurn ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, að sa...

Farsæll áhugaræktandi
Fréttir 15. júlí 2024

Farsæll áhugaræktandi

Þrír synir undan heiðursverðlaunahryssunni Álöfu frá Ketilsstöðum komu fram á La...

Hundrað hesta setningarathöfn
Fréttir 12. júlí 2024

Hundrað hesta setningarathöfn

Setningarathöfn Landsmóts hestasmanna er alla jafna hátíðleg.

Til þess var leikurinn gerður
Fréttir 11. júlí 2024

Til þess var leikurinn gerður

Stjórn Búsældar hefur fyrir sitt leyti samþykkt söluna á Kjarnafæði Norðlenska t...

Skammur aðdragandi að sölunni
Fréttir 11. júlí 2024

Skammur aðdragandi að sölunni

Bræðurnir Eiður og Hreinn Gunnlaugssynir hafa sem áður segir samþykkt kauptilboð...

Kaup Skagfirðinga á Kjarnafæði Norðlenska
Fréttir 11. júlí 2024

Kaup Skagfirðinga á Kjarnafæði Norðlenska

Meginmarkmið kaupa Kaupfélags Skagfirðinga (KS) á Kjarnafæði Norðlenska (KN) er ...

Tilþrif á Landsmóti
Fréttir 11. júlí 2024

Tilþrif á Landsmóti

Enginn skortur var á glæsilegum tilþrifum stólpafáka sem komu fram í gæðingakepp...

Verður langstærsta kjötafurðastöð landsins
Fréttir 11. júlí 2024

Verður langstærsta kjötafurðastöð landsins

Kaupfélag Skagfirðinga (KS) hefur gert kauptilboð í allt hlutafé Kjarnafæðis Nor...