Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Guðmundur Sigurðsson fram­kvæmda­stjóri Vistorku á Akureyri.
Guðmundur Sigurðsson fram­kvæmda­stjóri Vistorku á Akureyri.
Fréttir 7. janúar 2021

Um 70 tonnum af olíu er skilað og hún endurunnin

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir

„Við höfum náð góðum árangri í þessu verkefni og ávinningurinn er mikill. Það má líta svo á að hver og einn sem safnar olíu og fitu á sínu heimili og skilar í réttan farveg sé eigin olíuframleiðandi,“ segir Guðmundur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Vistorku á Akureyri, en félagið hefur í samvinnu við fleiri boðið íbúum á Akureyri og Eyjafjarðarsvæðinu upp á Græna trekt til að auðvelda söfnun á úrgangsolíu og fitu sem til fellur á heimilum. Einn lítri af olíu sem skilað er inn verður með íblöndun metanols að einum lítra af lífdísil.

Græna trektin hefur verið í boði á Akureyri frá því síðla árs 2015. Undanfarin ár hafa heimilin safnað og skilað inn um 6 tonnum af úrgangolíu og fitu á ári. Veitingahús og mötuneyti skila um tífalt meira magni, eða um 60 tonnum árlega, þannig safnast 70 tonn af olíu og fitu árlega í gegnum fitusöfnunarkerfið sem Norðurorka, Orkey, Terra og Akureyrarbær hafa byggt upp.

Guðmundur segir að markmið með því að safna þessum vökva saman sé margvíslegt. Komið sé í veg fyrir að fitan fari út í fráveitukerfið þar sem hún getur valdið tjóni, m.a.  stíflum, og farið illa með dælur og annan búnað. Eins, og ekki síður, sé búin til úr þessum úrgangi verðmæt vara, en úrgangsolían og -fitan er endurunnin hjá Orkey þar sem búin er til lífdísill. 

„Þetta er virkilega öflugt loftslagsverkefni, það dregur úr sóun á lífrænum úrgangi og hefur einnig í för með sér minni innnflutning á jarðefnaeldsneyti.“

Mikil magn fellur til í desember

Nú í desember fellur óvenjumikið af þessu hráefni til þegar landsmenn steikja ókjörin öll af laufabrauði, soðnu brauði og kleinum til viðbótar við allt hangikjötið og steikurnar sem boðið er upp á. 

„Það fellur mun meira til af steikarolíu, tólg og fitu  á heimilum landsins en í öðrum mánuðum ársins og ekki úr vegi að minna fólk á mikilvægi þess að safna þessu saman og skila inn fremur en skola niður í vaskinn,“ segir Guðmundur. Öll fita, sama hvaða nafni sem hún nefnist, kemur þó við sögu söfnunarinnar, þó matarolía sé mest áberandi, smjör, útrunnið lýsi, hörð fita, t.d. sú sem fellur til af lambasteikinni, má gjarnan fljóta með.  

Æ fleiri heimili norðan heiða taka þátt

Hann segir að fólki á Eyja-fjarðar-svæðinu sem safni steikarolíu og fitu hafi fjölgað jafnt og þétt frá því verkefnið hófst. Hægt er að skila ílátum með olíu og fitu við alla grenndargáma á Akureyri utan eins og mótttökukassi er einnig til staðar í Hrísey. Þá má skila í flokkunarstöðina við Réttarhvamm. Græna trektin er hugsuð til að skrúfa á gosdrykkjarflöskur og auðvelda fólki þannig söfnunina heima við, en Guðmundur segir að í raun megi skila olíunni og fitunni í hvaða íláti sem er. Hann bendir á að því fleiri lítrum sem fólk skilar inn því meiri ábati. Framleiðsla á lífdísil aukist og þurfi að sama skapi að flytja minna inn af olíu sem öllum er til hagsbóta.

Græna trektin stendur íbúum á Akureyri og Eyjafjarðarsvæðinu til boða en Guðmundur segir áhuga fyrir hendi að taka slíka söfnun einnig upp á heimilum á höfuðborgarsvæðinu. Veitingastaðir og mötuneyti skili flest  inn úrgangsolíu, Ikea t.d. sem rekur einn stærsta veitingastað á Íslandi safnar og skilar í réttan farveg allri sinni úrgangsolíu sem nemur mörgum tonnum á hverju ári.

Áskorun að ná til fleiri heimila 

„Það falla til um það bil tveir lítrar af úrgangsolíu og fitu af hverju heimili árlega, þannig að við erum að tala um gríðarlegt magn í heild sem til fellur á landinu öllu,“ segir hann. Magnið gæti á að giska verið í kringum 300 þúsund lítrar til eða frá á ári gróflega áætlað. „Það væri verulegur ávinningur af því að ná þessu inn til endurvinnslu og framleiðslu á lífdísil sem síðan nýtist sem orkugjafi fyrir fiskiskip og stóra bíla svo dæmi séu tekin,“ segir Guðmundur. Samherji hefur notað íblöndunarefnið á togara sína og efnið nýtist einnig við framleiðslu á malbiki. 

Skylt efni: vistorka

Nýtt verknámshús byggt á Sauðárkróki
Fréttir 8. maí 2024

Nýtt verknámshús byggt á Sauðárkróki

Verknámshús Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra (FNV) á Sauðárkróki mun stækka ve...

Torfæra til styrktar björgunarsveitinni
Fréttir 7. maí 2024

Torfæra til styrktar björgunarsveitinni

Laugardaginn 11. maí fer hin árlega Sindratorfæra fram við Gunnarsholtsveg rétt ...

Nýtt erfðapróf fyrir bógkreppu í sjónmáli
Fréttir 6. maí 2024

Nýtt erfðapróf fyrir bógkreppu í sjónmáli

Í sjónmáli er nýtt erfðapróf til greiningar á arfberum erfðagallans sem veldur b...

Jarðgerð á lagernum
Fréttir 3. maí 2024

Jarðgerð á lagernum

Krambúðin í Mývatnssveit er nú með jarðgerðarvél fyrir lífrænan úrgang í verslun...

Fyrsti skipulegi raforkumarkaður landsins
Fréttir 2. maí 2024

Fyrsti skipulegi raforkumarkaður landsins

Opnuð hefur verið íslensk raforkukauphöll, sú fyrsta á Íslandi og með það að mar...

Vöktun íslenskra skóga viðamest
Fréttir 2. maí 2024

Vöktun íslenskra skóga viðamest

Á sviði rannsókna og þróunar hjá Landi og skógi eru fjölmörg verkefni og þeirra ...

Samstarf háskóla skapar tækifæri
Fréttir 2. maí 2024

Samstarf háskóla skapar tækifæri

Jarðræktarmiðstöð LbhÍ er fjármögnuð með skilyrðum um samvinnu við aðrar menntas...

Sjónarmiðin samrýmast ekki
Fréttir 2. maí 2024

Sjónarmiðin samrýmast ekki

Ísteka telur að Samkeppniseftirlitið hefði átt að óska eftir uppfærðum upplýsing...