Úrslitin á Íslandsmótinu í matarhandverki
Askurinn, Íslandsmeistarakeppni í matarhandverki, var haldin dagana 19.-21. nóvember. Úrslitin voru síðan kynnt á matarhátíð á Hvanneyri á laugardaginn, en veitt voru gull-, silfur- og bronsverðlaun fyrir efstu þrjú sætin í hverjum keppnisflokki – og er gullverðlaunahafi jafnframt Íslandsmeistari í viðkomandi flokki.
Keppt var í tíu flokkum matvæla.Gæðamat dómara fór fram miðvikudaginn 20. nóvember í húsakynnum Matís, þar sem þættir eins og áferð, útlit, lykt, bragð og nýnæmi var metið, en 133 vörur voru skráðar til leiks.
Keppnin er að sænskri fyrirmynd og hefur sambærilega hátíð verið haldin þar frá 1998. Íslandsmeistarakeppnin í matarhandverki hefur einu sinni áður verið haldin, árið 2014, en þá var hún haldin í samstarfi Matís og norræna verkefnisins Ný norræn matvæli (Ny Nordisk Mad). Þar kepptu 110 vörur frá öllum Norðurlöndunum í átta flokkum.
Núna heldur Matís keppnina í samstarfi við Sóknaráætlun Vesturlands, Markaðsstofu Vesturlands, Landbúnaðarháskóla Íslands og Matarauð Íslands.
Mjólkurvörur.
Úrslitin voru eftirfarandi:
Bakstur
- Gull, Rúgbrauð – Brauðhúsið ehf
- Silfur, Rúg hafrabrauð – Brauðhúsið ehf
Ber, ávextir og grænmeti
- Gull, Þurrkaðir lerkisveppir – Holt og heiðar ehf
- Silfur, Grenisíróp – Holt og heiðar ehf
- Brons, Sólþurrkaðir tómatar – Garðyrkjustöðin Laugarmýri
Ber, ávextir og grænmeti – sýrt
- Gull, Pikklaðar radísur – Bjarteyjarsandur
- Silfur, Kimchi, krassandi kóreönsk blanda – Huxandi Slf
- Brons, Pylsukál, eitt með öllu – Huxandi slf
Ber, ávextir grænmeti, drykkir
- Gull, Aðalbláberjate – Urta islandica ehf
- Silfur, Krækiberjasafi – Íslensk hollusta ehf
Fiskur og sjávarfang
- Gull, Birkireyktur urriði – matarhandverk úr Fram-Skorradal
- Silfur, heitreyktur makríll – Sólsker
- Brons, Léttreyktir þorskhnakkar – Sólsker
Vörur úr flokkunum Kjöt og kjötvörur annars vegar og svo Kjöt og kjötvörur, hráverkaðar.
Kjöt og kjötvörur
- Gull, Gæsakæfa – Villibráð Silla slf
- Silfur, Taðreykt hangikjöt – Sauðfjárbúið Ytra-Hólmi
Kjöt og kjötvörur, hráverkaðar
- Gull, Rauðvínssalami – Tariello ehf
- Silfur, Nautasnakk – Mýrarnaut ehf
- Brons, Ærberjasnakk – Breiðdalsbiti
Mjólkurvörur
- Gull, Sveitaskyr – Rjómabúið Erpsstaðir
- Silfur, Búlands Havarti – Bíobú ehf
- Brons, Basilikusmjör – Á Ártanga
Nýsköpun (2 með gull)
- Gull, Bopp – Havarí
- Gull, Söl snakk – Bjargarsteinn Mathús
- Brons, Saltkaramellusíróp – Urta Islandica ehf
Vörur úr flokknum Nýsköpun drykkir.
Nýsköpun drykkir
- Gull, Glóaldin Kombucha Iceland – Kúbalúbra ehf
- Silfur, Súrskot- safi úr Kimchi – Huxandi Slf
- Brons, Rababaravín – Og natura
Einstakt bragð, gæði og ímynd
Í tilkynningu frá Matís um fyrirkomulag keppninnar segir: „Matarhandverk snýst um að skapa vörur þar sem lögð er áhersla á einstakt bragð, gæði og ekki síst ímynd, sem iðnaður getur ekki búið til. Áherslan er á að nota staðbundin hráefni, framleiðslu í litlu magni sem er oft svæðisbundin. Matarhandverksvörur eru heilnæmar, án óþarfra aukaefna og vörur sem hægt er að rekja til upprunans. Aðalsmerki matarhandverks er að nota það hráefni, mannafla og verkkunnáttu sem fyrirfinnst á staðnum, í gegnum alla framleiðslukeðjuna. Í matarhandverki er lögð áhersla á að þróa hefðbundnar vörur fyrir neytendur dagsins í dag.“