Víða ratað: Verður afrétturinn afréttari ferðaþjónustunnar?
Ferðaþjónustubændur um allt land horfa fram á gjörbreytta eftirspurn og þörf á nýsköpun. Hlaðvarpsþátturinn Víða ratað mun á næstu vikum horfa sérstaklega til nýsköpunar tengt ferðaþjónustu.
Sveinn Margeirsson tók hús á Höddu Gísladóttur og Hauki Snorrasyni á Hrífunesi á dögunum. Þar á bæ verður áherslan í sumar á að gefa Íslendingum kost á að upplifa náttúruperlur sem þeir hafa ekki aðgang að á hverjum degi, samhliða því að njóta matar úr héraði með alþjóðlegum blæbrigðum.