Fagmennska og gleði verður í forgrunni, frábærir hestar og skemmtilegt fólk
Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir
„Ég hlakka mikið til að vinna með skemmtilegu fólki að uppbyggingu þessarar frábæru hátíðar, sem verður allt í senn; glæsilegt íþróttamót, menningarviðburður, fjölskylduhátíð en umfram allt mannamót þar sem íslenski hesturinn verður í öndvegi,“ segir Áskell Heiðar Ásgeirsson, sem á dögunum tók við starfi framkvæmdastjóra vegna Landsmóts hestamannafélaga sem haldið verður næsta sumar á Hólum í Hjaltadal. „Svo er auðvitað skemmtilegt aukakrydd í þetta allt saman að sumarið 2016 verða liðin 50 ár frá því Landsmót fór síðast fram á Hólum.“
Áskell Heiðar segir ráðningu sína undirstrika ákveðna stefnubreytingu hjá Landssambandi hestamannafélaga, í þá átt að framkvæmd landsmóta verði í auknum mæli færð heim í þau héruð sem hýsa mótin hverju sinni og til fólksins sem þar býr. „Og því er mikilvægt að hestamenn og Skagfirðingar standi saman að mótshaldinu og umgjörðinni um það.“
Ólst upp á sauðfjárbúi
Heiðar er fæddur og uppalinn í Borgarfirði eystra, næstelstur fjögurra systkina, sonur hjónanna Bergrúnar Jóhönnu Borgfjörð og Ásgeirs Arngrímssonar. Þau hjónin ráku saman sauðfjárbú á bænum Brekkubæ ásamt ferðaþjónusturekstri og viðburðahald af ýmsu tagi varð síðar hluti af hinu daglega lífi þeirra og barnanna. Eftir að Jóhanna lést árið 2012 hefur Ásgeir haldið sauðfjárræktinni áfram og Arngrímur Viðar, elsti bróðir Heiðars, rekur nú umfangsmikla ferðaþjónustu á Borgarfirði.
Skólagangan fór fram heima í Borgarfirði og síðar í Alþýðuskólanum á Eiðum þaðan sem leiðin lá í Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki. Þar kynntist hann konu sinni, Völu Báru Valsdóttur, sem er hreinræktaður Skagfirðingur. „Við bjuggum í Reykjavík á meðan við stunduðum bæði nám í borginni, hún lærði til leikskólakennara og ég var í landafræði við Háskóla Íslands. Við snerum svo heim á Krókinn að loknu námi árið 1998 og höfum búið þar síðan,“ segir Heiðar. Þau Vala eiga fjórar dætur, sú elsta varð 18 ára í vikunni en sú yngsta varð fjögurra ára í desember síðastliðnum.
Byggði upp tónlistarhátíðina Bræðsluna ásamt fleirum
Heiðar starfaði lengi sem sviðsstjóri hjá Sveitarfélaginu Skagafirði þar sem hann hafði umsjón með menningarstarfi, viðburðum, ferða- og atvinnumálum. Hann settist á skólabekk á ný árið 2012 og lauk MA-námi í ferðamálum og viðburðastjórnun frá Háskólanum á Hólum, en hluti af því var gestanám í Englandi. Fjölskyldan fékk þannig tækifæri til að búa í útlöndum veturinn 2013 til 2014. Undanfarið ár hefur Heiðar kennt við Háskólann á Hólum og Háskóla Íslands, auk þess að skipuleggja eigin viðburði. Einn sá þekktasti er Bræðslan, sívaxandi tónlistarhátíð sem haldin er á æskustöðvum hans, Borgarfirði eystra, en þá hátíð hefur hann byggt upp ásamt Magna, bróður sínum, og fleirum undanfarinn áratug.
Góð aðstaða fyrir hendi á Hólum
„Mér bauðst að taka að mér framkvæmdastjórn Landsmótsins næsta sumar og auðvitað er ekki hægt að láta slíkt tækifæri úr hendi sleppa, þetta er mjög spennandi verkefni, skemmtilegur viðburður og ekki spillir fyrir að hann skuli fara fram á þessum yndislega stað sem Hólar eru,“ segir Heiðar.
Háskólinn á Hólum er öflugasta miðstöð landsins þegar kemur að kennslu og rannsóknum á öllu er viðkemur íslenska hestinum og það telur Heiðar einn helsta styrkleika þess að staðsetja mótið á Hólum. Fyrir hendi er á staðnum góð aðstaða, frábær húsakostur, glæsilegt hesthús, reiðhallir og fleira sem nýtist vel á mótinu. „Mikið af hestafólki hérlendis og erlendis hefur tengsl við staðinn, t.d. eftir að hafa stundað þar nám og það er von mín að þetta fólk skili sér á landsmót.“
Miklar framkvæmdir fyrirhugaðar í sumar
„Nú í sumar verður hafist handa við þær endurbætur sem gera þarf á svæðinu til að það verði í stakk búið til að taka á móti þeim fjölda gesta sem við vonumst eftir að sæki mótið heim. Það verða útbúnar glæsilegar áhorfendabrekkur við aðalkeppnisvöllinn og byggður verður kynbótavöllur, auk þess sem unnið verður í vegagerð og að öðrum nauðsynlegum verkefnum sem ráðast verður í svo að sem best fari um gesti og hross meðan á mótinu stendur,“ segir Heiðar. „Háskólinn á Hólum og Sveitarfélagið Skagafjörður hafa ásamt hestamannafélögunum í Skagafirði lagst á árar með Landssambandi hestamannafélaga. Allt þetta góða fólk stefnir að sama markmiði og ég er þess fullviss að umgjörð mótsins verður eins og best verður á kosið, stórglæsileg.“
Markmiðið að senda gesti heim með góðar minningar
Heiðar segir að almennt séu Skagfirðingar ánægðir með val á landsmótssvæði, að mótið fari fram á Hólum í stað Vindheimamela, „en eflaust eru á því skiptar skoðanir eins og á öllu öðru. Ég finn hins vegar fyrir miklum hug í íbúum hér á svæðinu, menn ætla sér að leggjast á eitt um að gera landsmótið að vel heppnuðum viðburði. Markmiðið er að senda gesti heim með góðar minningar þannig að þeir vilji koma aftur og helst sem oftast heim að Hólum,“ segir Heiðar.
Hann nefnir að allir geri sér grein fyrir því að miklu skipti fyrir íbúa á öllu Norðurlandi að fyrir hendi sé góður landsmótsstaður í landshlutanum „og ég er sannfærður um að hestamenn og aðrir á svæðinu þjappa sér saman á bak við mótið“ segir hann og bendir m.a. á að heimamenn þurfi í sameiningu að vinna að því að koma gestum mótsins fyrir í þeirri gistingu sem þeir helst kjósa.
Í forgrunni að skapa skemmtilega stemmningu
„Það eru miklar vonir bundnar við þetta mót og við þurfum að standa okkur í því að búa til viðburð sem höfðar til hestaáhugafólks, en einnig til þeirra sem vilja sækja skemmtilegt mannamót. Við þurfum að hafa í forgrunni að skapa skemmtilega stemningu, við viljum búa til viðburð þar sem fagmennska og gleði verða aðalatriðin, frábærir hestar og skemmtilegt fólk,“ segir Heiðar. Ómögulegt sé að segja fyrir um fjölda hugsanlegra gesta nú ári fyrir landsmót. „En við stefnum auðvitað að því að fá mikinn fjölda til okkar, aðalatriðið er þó að allir fari glaðir heim.“
Heiðar sinnir væntanlegu landsmóti í hlutastarfi fram til næstu áramóta, en á nýju ári mun hann snúa sér alfarið að undirbúningi mótsins. Fyrstu vikurnar segir hann að fari í að koma sér inn í reksturinn og kynnast fólki sem starfar við mótshaldið. Vinna er hafin við opnun miðasölu í sumar og eins er hafinn undirbúningur vegna heimsmeistaramóts íslenska hestsins í Herning í Danmörku sem verður í ágúst. „Þar verður landsmótið í góðum félagsskap á hestatorgi og munum við kynna það rækilega þar,“ segir Heiðar.