Vöruþróun í samhengi landbúnaðar
Nýsköpun í ferðaþjónustu er áframhaldandi viðfangsefni í hlaðvarpsþættinum Víða ratað með Sveini Margeirssyni. Kormákur Hermannsson er framkvæmdastjóri ferðaþjónustufyrirtækisins Basecamp Iceland. Hann hefur langa reynslu af nýsköpun og hefur byggt upp Basecamp Iceland frá árinu 2014.
Fyrirtækið vinnur um allt land og hefur m.a. unnið mikið að því að bæta upplifun ferðamanna af norðurljósum. Vöruþróun hefur frá upphafi skipað veglegan sess í þróun Basecamp Iceland og fjallar Kormákur m.a. um þá vöruþróun í samhengi landbúnaðar.
Hægt er að hlusta á þáttinn á öllum helstu streymisveitum og hér að neðan: