Metaðsókn að selaveislu
Höfundur: Hörður Kristjánsson
Árleg selaveisla fór fram í Haukahúsinu í Hafnarfirði laugardaginnn 9. nóvember og var metaðsókn að veislunni. Greinilegt var að gestir kunnu vel að meta veitingarnar sem fyrir marga eru þó harla óvenjulegar.
Það eru feðgarnir í veitingahúsinu Laugaási, þeir Ragnar Guðmundsson og Guðmundur, sonur hans, sem hafa haft vega og vanda af þessari veislu sem á uppruna sinn að rekja til ársfundar selabænda. Þarna var boðið upp á þjóðlegan mat eins og margvíslegar selaafurðir, hvalkjöt, fuglakjöt, lambakjöt, lax, siginn bútung og margt fleira. Runnu kræsingarnar ljúflega í gesti, hvort sem um var að ræða selspik, súrsaða selshreifa, eðal selsteikur eða annað ljúfmeti. Vakti koma ræðumanns kvöldsins nokkra athygli, en það var náttúruverndarsinninn Andri Snær Magnason. Þarna var hann samt í hópi ættingja úr Breiðafirðinum. Gerði hann m.a. góðlátlegt grín að villibráðaráti og þá auðvitað þeim villimönnum, sér og öðrum, sem neyta slíkrar villibráðar.
Andri Snær Magnason rithöfundur og Ragnar Guðmundsson, matreiðslumeistari Í Laugaási, við kræsingar í selaveislunni. Þar var nær öll flóran í íslenskum mat frá kjötmeti af dýrum sem hafa sérhæft sig að aðstæðum á láði, legi og í lofti og fiski af ýmsum tegundum. Fyrir framan þá er siginn bútungur sem hægt var að gæða sér á með kartöflum, mörfloti, hamsatólg og selspiki.