Listviðburðir á Tröllaskaga
Mikið verður um að vera í Menningarhúsinu Tjarnarborg næstu daga. Á föstudaginn hefst svokallað Tröllaskaga Art Exhibition en það eru viðburður sem skipulagðir eru í sameinginu af Önnu Maríu Guðlaugsdóttur forstöðumanni Menningarhússins Tjarnarborgar og Alice Liu forstöðumanni Listhússins í Ólafsfirði.
Í Menningarhúsinu verða m.a. sýnd verk eftir 20 listamenn frá 10 þjóðlöndum. Dagskráin stendur til þriðjudagsins 29. júlí.