Úthlutun Menningarráðs Vestfjarða 2014
Menningarráð Vestfjarða hefur lokið við að fara yfir umsóknir um styrki vegna ársins 2014 og stjórn Fjórðungssambands Vestfjarða staðfest tillögu ráðsins um úthlutun. Að þessu sinni voru samtals 35,2 milljónir til úthlutunar til margvíslegra menningarverkefna og uppbyggingar víða um Vestfirði. Umsóknir voru fjölbreyttar og mörg verkefni afar áhugaverð.
Alls voru teknar fyrir 20 umsóknir í flokknum stofn- og rekstrarstyrkir. Fjárhagsáætlun þessara umsækjanda hljóðaði samtals upp á tæpar 121 milljón og beðið var um stuðning að upphæð tæpar 36 milljónir. Samþykkt var að veita 12 aðilum stofn- og rekstrarstyrki að upphæð á bilinu 450 þúsund til 1,5 milljón. Samtals var úthlutað 13,2 milljónum í stofn- og rekstrarstyrki í samræmi við menningarsamning milli ríkisins og Fjórðungssambands Vestfirðinga árið 2014.
Sjánar nánar hér.