Margur er knár þótt hann sé næstum agnarsmár
Fyrir nokkru hafði samband við mig fyrrum sveitungi minn og spurði hvort ég hefði prófað eða séð litla dráttarvél sem auglýst var í Bændablaðinu. Ekki hafði ég prófað vélina, en fyrir skemmstu bauðst mér að prófa þessa litlu dráttarvél við aðstæður sem ég fyrirfram hélt að væri henni ofraun.
30 hestöfl og ekki nema 2,2 tonn
Prófunin fór fram í gamalli motocrossbraut við Bláfjallaveg sem fólst í að draga heimatilbúinn hefil eftir lítilli æfingabraut, braut sem nokkrir menn sem eru fimmtugir og eldri nota við æfingar á torfæruhjólum. Yfirleitt hafa þessir menn notað stóra jeppa til að draga hefilinn. Dongfeng kom verulega á óvart þar sem hestöflin eru ekki nema 30 og þyngdin ekki nema 2,2 tonn með moksturstækjum. Þegar ég lagði af stað bjóst ég ekki við að svona lítil dráttarvél mundi ráða við að draga hefilinn. Mér til mikillar furðu hafði Dongfeng lítið fyrir því að draga hefilinn, en það eina sem ég þurfti að passa mig á var hliðarhalli þar sem vélin er mjó og völt.
Hitnaði ekki einu sinni við erfiðið
Að hefla þennan hring var ekkert mál þó svo að vissulega hafi vélin verið að erfiða í bröttustu hólunum, en alltaf kraflaði fjórhjóladrifið vélinni áfram. Alltaf var ég að bíða eftir að vélin myndi festa sig eða hitna um of. Reyndin var sú að hiti vélarinnar var aldrei yfir 70 gráður, en það eina sem ég hefði mátt gera var að hafa heyrnarhlífar eða tappa í eyrun því að í sumum brekkunum var snúningurinn mikill og hávaði nokkur.
Eftir heflun mokaði ég nokkrum skóflum yfir klöpp sem í brautinni er og að moka með vélinni er bæði auðvelt og er hún lipur til moksturs.
Svona rétt til að prófa þá setti ég skófluna á kaf í malarbing vitandi að ekki færi skóflan upp og þá fóru bara afturhjólin á loft. En samkvæmt upplýsingum frá innflytjanda vélarinnar byrjar hún að lyftast upp að aftan við u.þ.b. 800 kg þunga.
Mín skoðun er að Dongfeng geti ráðið við megnið af þeim verkefnum sem meðalbóndi þarf að fást við, henti vel til snjómoksturs á gangstéttum og fyrir smærri verktaka s.s. garðyrkju og fleira. Helstu upplýsingar um Dongfeng: DF-304-G2 Changchai dísilvél, 3ja strokka og 30 hestöfl við 2.400 snúninga á mínútu (sn/mín). Meðal eldsneytiseyðsla 2–3 lítrar/klst. Hátt og lágt drif með vendigír sem gefur 8 gíra áfram og 8 afturábak. Hámarkshraði 35 km/klst. Drif á öllum hjólum með driflæsingu.
Helstu mál og upplýsingar: