Norska leiðin og samstarf milli RML og AVH
Höfundur: Sigtryggur Veigar Herbertsson ráðunautur í bútækni og aðbúnaði sigtryggur@rml.is
Undanfarin misseri hafa verið miklar framkvæmdir hjá bændum sem miða að því að auka dýravelferð. Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins hefur komið að því að ráðgefa og aðstoða bændur í nýbyggingum og breytingum á mismikinn hátt frá stofnun fyrirtækisins árið 2013.
Sú ráðgjöf hefur falist í rekstrarráðgjöf, kostnaðarútreikningum, innra skipulagi húsnæðis og möguleikum varðandi breytingar á gömlum húsum. Frá því að RML var stofnað 2013 hefur bútækniráðgjöf til bænda verið takmörkunum háð varðandi skil á teikningum til yfirvalda.
Samstarf við arkitekta- og verkfræðistofuna AVH ehf
RML hefur verið að leita að heppilegum samstarfsaðila varðandi það að koma ráðgjöfinni í þann farveg að hægt sé að bjóða bændum þjónustu frá hugmynd að fullbyggðu gripahúsi. RML hefur hingað til vantað samstarf við teiknistofu með skrifstofur nálægt viðskiptavinum sunnan og norðan heiða.
Náðst hafa samningar við AVH sem er fyrirtæki sem getur skilað öllum tilskildum teikningum til yfirvalda. Ætlunin er að teikningarnar verði unnar í grunninn af RML en kláraðar af AVH í fullu samráði við bútækniráðgjafa RML, varðandi aðbúnað og vinnuumhverfi, sem ætti að minnka hönnunarkostnað.
AVH ehf er alhliða teiknistofa sem sér um arkitekta-, burðarþols- og lagnateikningar og hönnun fyrir allar stærðir af mannvirkjum. AVH ehf. hefur sérhæft og reynslumikið starfsfólk með áratuga langa reynslu í öllu sem við kemur mannvirkjagerð. AVH ehf. hefur hannað fjölmargar byggingar síðastliðin 40 ár. Fyrirtækið var formlega stofnað árið 1974 og hét þá Teiknistofa Hauks Haraldssonar sf., en var breytt í AVH arkitektúr – verkfræði – hönnun árið 2003. Hverjum bónda verður að sjálfsögðu áfram frjálst að velja aðrar leiðir varðandi fullvinnslu sinna teikninga kjósi hann svo.
Norska leiðin
Einnig hefur náðst samkomulag við Norsk Landbruksrådgivning (NLR sem er í eigu norskra bænda, á svipaðan hátt og RML er í eigu íslenskra bænda) um að þeir komi að mótun og aðstoði RML við að útfæra ráðgjöf til bænda í byggingarhugleiðingum að norskri fyrirmynd.
Hjá NLR er mikið lagt upp úr því að grunnvinnan sé góð áður en farið er í framkvæmdir, og með útboðum og hlutlausri ráðgjöf nái sölumennskan (söluráðgjöf) ekki völdum í ákvarðanatöku og vali á byggingarhlutum og búnaði.
Í dag, með samvinnu við AVH, erum við hjá RML með flesta þá þætti sem þurfa að vera til staðar til að hægt sé að fylgja verkefnum alla leið og með því að nýta okkur reynslu Norðmanna getur RML fylgt bónda betur í gegnum ferlið frá hugmynd að gripahúsi og í leiðinni stuðlað að öflugri samkeppni á markaðnum.
NLR mun senda sérfræðing í húsnæði fyrir nautauppeldi og holdakýr til Íslands í lok nóvember eða byrjun og er ætlunin að ferðast með hann um landið eins og áhugi er til.
Samvinna RML og Norsk Landbruksrådgivning
NLR mun senda sérfræðing í húsnæði fyrir nautauppeldi og holdakýr til Íslands 27.–30. nóvember og er ætlunin að ferðast með hann um landið eins og áhugi er til. Eru áhugasamir sem vilja koma á fræðslufund með honum vinsamlegast beðnir um að senda tölvupóst á sigtryggur@rml.is, engin binding felst í því að hafa samband.
Mynd 1 Skema fyrir hugmynd að útihúsi.