Pampa frá landi tuðrusnillinga
Það hafa víða verið smíðaðar dráttarvélar í gegnum tíðina og Argentína er þar engin undantekning. Íslendingar eru þó trúlega uppteknari við það í dag að landslið Argentínu í knattspyrnu verður fyrsti mótherji mörlandans í heimsmeistaramótinu sem fram fer í Rússlandi í júní.
Aðal skytta Argentínu er knattspyrnusnillingurinn Lionel Andrés Messi Cuccittini. Ekki er vitað til að hans fjölskylda hafi verið viðriðin dráttarvélasmíði, en mögulega hefur faðir hans og örugglega afi þekkt þá merku dráttarvélategund Pampa. Þessi tegund var smíðuð í bænum Cordoba í Argentínu af flug- og sjóiðnaðarverksmiðju ríkisins (Industrias Aeronáuticas y Mecánicas del Estado - I.A.M.E.) Verksmiðjan var stofnuð árið 1952 upp úr flugiðnaðarstofnun Argentínu (Institute Aerotecnica). Var verksmiðjan sérstaklega sett á fót til að framleiða dráttarvélar og mótorhjól. Var fengið leyfi til að framleiða eftirmynd hinna þýsku Lanz Bulldog traktora.
Byrjað var að framleiða dráttarvélar í verksmiðjunni undir nafninu Papa T01 árið 1952 og voru þær framleiddar með sama sniði til 1955. Árið 1955 var svo hafin framleiðsla á Pampa T02 og var hún framleidd til 1956. Það var dráttarvél með 60 hestafla (45kW) mótor.
Fyrirtækið skipti síðar um nafn og hét þá Dirección Nacional de Fabricaciones e Investigaciones Aeronáutica (D.I.N.F.I.A.), eða Flug- og sjórannsóknarstofnun landsins.
Árið 1959 keypti ítalski bíla- og dráttarvélaframleiðandinn Fíat fyrirtækið og fékk það þá nafnið Fábrica de Tractores FIAT-Concord. Var þá hafin framleiðsla á Fiat-Concord dráttarvélum samkvæmt leyfi frá móðurfélaginu Fiat.
Árið 1961 urðu enn tíðindi í dráttarvélaframleiðslusögu Argentínu þegar vélaframleiðandinn Perkins keypti verksmiðjuna. Í kjölfarið var hætt að framleiða þar dráttarvélar árið 1963.
Eflaust hefur gamla Pampa vélin verið mikill kjörgripur fyrir argentínska bændur. Öflug var hún á þess tíma mælikvarða með öll sín 60 hestöfl undir húddlokinu. Eitt helsta einkenni þessara véla var stórt svinghjól á hlið þeirra. Engum sögum fer af því að þurft hafi að sparka þeim í gang, enda Argentínumenn trúlega betri í því að sparka tuðrum í mark andstæðinga sinna. Við verðum svo bara að vona að snillingurinn Messi gleymi skotskónum sínum heima þegar hann mætir Íslendingum í sumar.