Someca, franskur Fiat
Saga frönsku Someca dráttarvéla er nokkuð flókin. Dráttarvélarnar komu fyrst á markað árið 1953 og framleiddar af SIMCA sem var þá dótturfélag Fiat Auto Italia.
Árið 1934 stofnaði FIAT fyrirtæki í Frakklandi sem kallaðist SAFAF, Société Anonyme Française des Automobiles Fiat. Fyrirtækinu var ætlað að framleiða bifreiðar og bifreiðahluti. Það fyrirtæki hóf einnig strax innflutning á dráttarvélum frá Fiat og Steyr til Frakklands.
Síðar stofnaði Fiat SIMCA, Société Industrielle de Mécanique et Carrosserie Automobile, sem var ætlað að framleiða ítalska bíla og dráttarvélar í Frakklandi.
Árið 1953 hófst framleiðsla í Frakklandi á dráttarvélum sem fengu heitið Someca sem voru byggðir að hluta á dráttarvélum sem kölluðust MAP en síðar á hönnun ítalskra Fiat dráttarvéla undir frönsku vörumerki.
Undir lok sjötta áratugar síðustu aldar varð Someca hluti að SIMCA iðnaðarsamsteypunni.
Fyrst MAP síðar SOM 40
Áður en SIMCA hóf framleiðslu á dráttarvélum keypti fyrirtækið dráttarvélaframleiðsluhluta fyrirtækis sem kallaðist MAP, Manufacture d´Armes de Paris. Auk þess að framleiða landbúnaðartæki var MAP helsti vopnaframleiðandi Frakklands og hafði verið það frá 1665 þegar stofnandi fyrirtækisins hóf framleiðslu á hnífum og sverðum og síðar skotvopnum. MAP er helsti framleiðandi hátækni skotvopna í Frakklandi í dag.
Tæknibúnaður MAP var eftir kaup SIMCA notaður til að framleiða fyrstu Someca traktoranna.
Fyrsti Someca traktorinn, sem fékk heitið DA50, var að stórum hluta byggður á eldri dráttarvél sem kallaðist MAP DR3 og gat afkastað 37 hestöflum við 1500 snúningahraða á klukkustund.
Næsta týpa kom á markað 1957 og fékk heitið SOM 40. Sá traktor var einn af allra stærstu dráttarvélum sem smíðaðar höfðu verið í Frakklandi og nutu mikillar velgengni í landinu og stolt Frakka á þeim tíma.
Vélin í SOM 40 var af gerðinni Fiat OM COID 45, fjögurra strokka, 4165 cc dísilvél, sem afkastaði um 45 hestöflum við 1500 snúninga á klukkustund.
Árið 1964 var framleiðslu SOM 40 hætt en á þeim tíma höfðu verið framleiddir 18.741 slíkur en alls ríflega 40.000 SOMECA dráttarvélar í Frakklandi.
SOMECA í Argentínu
Árið 1953 setti Fiat á fót dótturfyrirtæki í Argentínu til að framleiða dráttarvélar. Í fyrstu kallaðist fyrirtækið Fiat Someca Construcciones Córdoba en árið 1959 var nafninu breytt í Fiat Concord. Flestar dráttarvélarnar sem Fiat framleiddi í Argentínu á þessum árum voru undir merki SOMCA
SOMECA síðan Fiat
Miklar breytingar urðu á framleiðslu SOMECA árið 1965 þegar fyrirtækið setti á markað svonefnda 15 seríu sem var hrein eftirmynd af Fiat Trattori dráttarvélum.
Fiat var allt frá upphafi meirihlutaeigandi í SOMECA en árið 1983 var fyrirtækið flutt undir FiatAgri sem var sá hluti Fiat sem sá um framleiðslu á landbúnaðarvélum. Heiti FiatAcri var breytt í Fiat New Holland árið 1993 og kallast í dag Fiat CNH Global.