Verðþróun lambakjöts á stríðstímum
Vorið er á næsta leiti og sauðburður rétt handan við hornið. Sauðfjárbændur eru margir hverjir uggandi yfir sinni afkomu, hvert verður endanlegt skilaverð á dilkakjöti til bænda haustið 2022? Við vitum sem er að rekstur sauðfjárbúa hefur á síðastliðnum árum verið afar erfiður. En hvernig sjáum við afkomu okkar þróast á þeim óvissutímum sem nú eru?
Árið 2021 varð gífurlega hækkun á öllum rekstrarvörum bænda, hækkanir sem eiga sér ekki mörg fordæmi og eru enn ekki að fullu komnar fram. Þá er ljóst að stríðið í Úkraínu er nú þegar farið að hafa áhrif á viðskipti með matvæli um allan heim. Dragist stríðið á langinn verða áhrif á matvælaverð enn meiri.
Aukinn kostnaður við framleiðslu á vörum kallar á aðhald í rekstri. Hvað varðar sauðfjárbændur er ljóst að nú þegar er búið að leita allra leiða til hagræðingar í rekstri. Það er því óhjákvæmilegt annað en að þær kostnaðarhækkanir sem nú dynja á okkur munu þurfa að koma fram í hækkuðu afurðaverði. Sauðfjárbændur hafa síðan frá verðfallinu 2016–2017 lagt sig fram við að sýna því skilning að það tekur tíma að ná markaðslegu jafnvægi, og þannig að ná fram leiðréttingu á afurðaverði samhliða jafnvægi í framleiðslu og sölu. En lengra verður ekki gengið í því að ætla sauðfjárbændum að framleiða lambakjötið án sanngjarnrar afkomu.
Íslenskir neytendur vilja hafa aðgang að lambakjöti og hverjir eru betur til þess fallnir að framleiða lambakjöt en íslenskir sauðfjárbændur, bændur sem hafa með útsjónarsemi og réttum ákvörðunum í gegnum tíðina tekist að byggja upp framleiðslu á hágæðavöru fyrir íslenska neytendur?
Eina leiðin til að tryggja neytendum aðgang að íslensku lambakjöti er að tryggja sauðfjárbændum afkomu, sanngjarna afkomu af sinni vinnu. Við þurfum að fara í sameiningu yfir það hvort við séum að skipta kökunni rétt. Getum við sameinast um það að hækka það hlutfall sem bændur fá af endanlegu skilaverði? Það er verkefni afurðastöðva og verslana. Bændur hafa ekki aðkomu að verðlagningu á lambakjöti þannig að við verðum að treysta á aðra í þeim efnum. Það þarf að vera samstarfsverkefni allra aðila virðiskeðjunnar að rétta hlut sauðfjárbænda.
Trausti Hjálmarsson,
formaður deildar sauðfjárbænda hjá BÍ