Vottaðar landnámshænur
Höfundur: Jóhanna Harðardóttir, Hlésey
Á aðalfundi Eigenda-ræktendafélags landnámshænsna, ERL kom fram að félagið hefur talsverðar áhyggjur af stofni landnámshænsna. Svo virðist sem einhverjir aðilar hér á landi selji fugla undir því yfirskini að um landnámshænur sé að ræða þótt þær falli ekki undir staðalinn Lýsing á íslensku landnámshænunni sem samþykktur var árið 2013.
Félagið ber ábyrgð á ræktun landnámshænunnar hérlendis sem erlendis, og vill grípa í taumana áður en í óefni er komið og benda kaupendum landnámshænsna á að kaupa aðeins landnámshænur af þeim sem hefa fengið vottun ERL.
Á síðastliðnu ári hefur borið talsvert á því að nokkrir kaupendur meintra landnámshænuunga fái fuglana ekki skráða þar sem þeir standast ekki ræktunarviðmið landnámshænsna.
Þetta er mjög erfið staða fyrir þá sem hafa keypt fugla í góðri trú og veldur stjórn félagsins talsverðum áhyggjum. Grunnur að ræktun landnámshænsna var lagður með þeim fuglum sem dr. Stefán Aðalsteinsson safnaði saman árið 1973 og hefur æ síðan verið ræktaður markvisst af ábyrgum aðilum.
ERL var stofnað árið 2004 með það markmið að halda stofni landnámshænsna í rækt og hefur gengið vel, en á síðustu árum hefur tekið að bera á því að óábyrgir einstaklingar selji unga sem landnámshænur án þess að uppfylla þau skilyrði sem til þess þarf eða hafa til þess vottun félagsins.
Öll dreifing á fuglum undir heitinu landnámshænur sem ekki stenst Lýsingu á íslensku landnámshænunni eru skemmdarverk við ræktunarstarfið, stefna stofninum í hættu og grafa undan því trausti sem ræktendur í ERL hafa áunnið sér hér heima og erlendis.
ERL vill eindregið benda hugsanlegum kaupendum sem vilja styðja við ræktun landnámshænunnar á að leita til aðila sem fengið hafa vottun hjá ERL eða fá ráðleggingar hjá félaginu áður en þeir kaupa sér fugla.
Hér fylgir listi yfir þá sem hafa fengið vottun hjá ERL en einnig nokkrir á biðlista fyrir skoðun fuglanna í vor.
Listi yfir vottaða ræktendur – yfirfarið í september 2016
Agnar Berg Sigurðsson
Frjóvguð egg
agnarbs@mi.is
Ásatún 10 2b, Kópavogi
Agnes Geirdal
Frjóvguð egg
agnesg@simnet.is
Galtalækur, Biskupstungum
Ungar
Anna Sigríður Helgadóttir
Brúnagerði, Þingeyjarsveit
Áslaug Lárusdóttir
aslaugl@gmail.com
Blómsturvellir 46, Neskaupstað
Björk Bjarnadóttir
Frjóvguð egg
illugaskotta@gmail.com
Brennholti, Mosfellsbæ
Björn Mikaelsson
Frjóvguð egg
bmikk@simnet.is
Furuhlíð 1, Sauðárkróki
Ungar
Brynhildur Inga Einarsdóttir
Frjóvguð egg
borg1@centrum.is
Sögusteinn, Ölfusi
Dísa Andeirman
Frjóvguð egg
disaand@gmail.com
Skeggjastaðir, Mosfellsbæ
Dóra Aðalsteinsdóttir
Frjóvguð egg
bardal63@gmail.com
Eyrarvegur 12, Grundarfjörður
Ungar
Egill Rafn Sigurgeirsson
Frjóvguð egg
egillrs@hotmail.com
Melahvarf 2, Kópavogi
Erna Árfells
Berjanesi, Hvolsvelli
Fanney og Trausti
Frjóvguð egg
fanneybk@gmail.com
Einholti, Ásahreppi
Ungar
traustith@simnet.is
Freyja og Marinó
Eysteinseyri, Tálknafirði
Guðlaug Jónsdóttir
Frjóvguð egg
Árbær, Reykhólahreppi
Hilmar og Salvör
Frjóvguð egg
hilmaraegir@simnet.is
Bolaklettar 1 Kjósahreppi
Hulda Leifsdóttir
Frjóvguð egg
Brekkubyggð 24, Blönduósi
Ingi Vignir Gunnlaugsson
Frjóvguð egg
ingivg@simnet.is
Hrannarbyggð 12, Ólafsfirði
Jóhanna Harðardóttir
Frjóvguð egg
johanna@hlesey.is
Hlésey, Hvalfjarðarsveit
Ungar
Kolbrún Júlíusdóttir
Frjóvguð egg
kolsholt@islandia.is
Kolsholt I Flóahreppi
Ungar
Magnea og Sigurbjörn
Frjóvguð egg
asamyri@hotmail.com
Ásamýri, Hellu
Ungar
Magnús Ingimarsson
Frjóvguð egg
m.ingimars@gmail.com
Hólmaflöt 2, Akranesi
Stundum ungar
Máni Hákonarson
Frjóvguð egg
hallafroda@yahoo.com
Dalsgarður 1 Mosfellsbæ
Ungar
Sigríður og Sveinn Þórðarson
Frjóvguð egg
Trabuco Canyon,
California
Vala Andrésdóttir Withrow
Frjóvguð egg
vala.andres@gmail.com
Redmond, Washington USA
Stundum ungar
Valgerður Auðunsdóttir
Frjóvguð egg
valhus@uppsveitir.is
Húsatóftum 1, Skeiðum
Ungar/Stundum unghænur
Þorvarður Jóhann Guðbjartsson
bonnya@simnet.is
Naustabúið 6, Hellissandi
Þórarinn Sighvatsson
Frjóvguð egg
sumarbustadir@simnet.is
Léttahlíð 3, Helgafellssveit
Ungar
Þórey Pálsdóttir
Frjóvguð egg
phoreyp@simnet.is
Norðurbraut 21, Selfossi
Enn bíða þónokkrir félagar skoðunar af hálfu félagsins.
/Jóhanna Harðardóttir, Hlésey