Svínabændur ályktuðu um mikilvægi þess að auka kornbirgðir í landinu
Deild svínabænda innan Bændasamtaka Íslands hélt sitt Búgreinaþing með fjarfundarfyrirkomulagi 15. mars. Ingvi Stefánsson var kjörinn formaður og með honum í stjórn er Geir Gunnar Geirsson varaformaður og varamenn í stjórn eru Björgvin Þór Harðarson og Guðbrandur Brynjúlfsson.