Úrbeinaðir svínahnakkar fluttir inn sem síður
Innflutningsaðilar eru grunaðir um að fara á svig við kerfið og flytja inn aðra hluta svínakjöts sem svínasíður. Rökstuddur grunur um að svo sé, segir formaður Félags svínabænda.
Innflutningsaðilar eru grunaðir um að fara á svig við kerfið og flytja inn aðra hluta svínakjöts sem svínasíður. Rökstuddur grunur um að svo sé, segir formaður Félags svínabænda.
„Við svínabændur stöndum á krossgötum og sjálfur hef ég um skeið verið að gera upp við mig hvort ég eigi að leggja út í umtalsverðar fjárfestingar eða láta gott heita, kyrrstaða er ekki í boði,“ segir Ingvi Stefánsson, svínabóndi á Teigi í Eyjafjarðarsveit og formaður Félags svínabænda.