Kjötmeistari Íslands 2018 er Oddur Árnason hjá SS
Fagkeppni Meistarafélags kjötiðnaðarmanna var haldin 8. og 9. mars í Menntaskólanum í Kópavogi. Þar mátu dómarar 125 mismunandi vörur frá kjötiðnaðarmönnum víða af landinu. Stigahæsti kjötiðnaðarmaðurinn reyndist vera Oddur Árnason frá Sláturfélagi Suðurlands og hlaut hann um leið sæmdarheitið „Kjötmeistari Íslands“.