Hugmyndir uppi um lagningu á jafnstraums- rafstreng í jörðu yfir Sprengisand
Landsnet heldur uppi umfangsmiklu flutningskerfi raforku og var um síðustu áramót með 3.283 kílómetra í rekstri af loftlínum. Lengd jarð- og sæstrengja er þó aðeins um 251 kílómetri, en sífellt meiri pressa er á í samfélaginu að skipta út loftlínum fyrir jarðstrengi.