Norðmenn efla nýsköpun og frumkvöðla um allt land
Hjá norsku Nýsköpunarmiðstöðinni Innovasjon Norge eru ýmsir valkostir í boði fyrir bændur og fyrirtæki tengd landbúnaði en á þessu ári hefur verið metár í fjölda umsókna til stofnunarinnar. Sigríður Þormóðsdóttir er yfirmaður nýsköpunar í lífhagkerfi hjá stofnuninni en undir það heyrir landbúnaður, sjávarútvegur og skógrækt.