Skoða stofnun umhverfisakademíu á Húnavöllum
Starfshópur sem skoðaði hugmyndir um nýtingu Húnavalla hefur skilað skýrslu þar sem fram kemur að hópurinn telji hugmynd um umhverfisakademíu fýsilegan kost að stefna að á staðnum fyrir sameinað sveitarfélag Húnavatnshrepps og Blönduósbæjar.