Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Myndin er tekin við undirritun fyrsta lánsins í samstarfi við EIF vegna kynslóðaskipta í landbúnaði, sem veitt var ungum bændum til kaupa á jörðinni Dæli í Skíðadal í Dalvíkurbyggð. Frá vinstri á myndinni eru:  Arnar Már Elíasson, forstöðumaður fyrirtækjasviðs Byggðastofnunar og Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri ásamt Hjálmari Birgi Jóhannssyni og Brynhildi Heiðu Jónsdóttur og dætrum þeirra.
Myndin er tekin við undirritun fyrsta lánsins í samstarfi við EIF vegna kynslóðaskipta í landbúnaði, sem veitt var ungum bændum til kaupa á jörðinni Dæli í Skíðadal í Dalvíkurbyggð. Frá vinstri á myndinni eru: Arnar Már Elíasson, forstöðumaður fyrirtækjasviðs Byggðastofnunar og Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri ásamt Hjálmari Birgi Jóhannssyni og Brynhildi Heiðu Jónsdóttur og dætrum þeirra.
Fréttir 11. október 2020

Betri lánakjör eiga m.a. að auðvelda kynslóðaskipti á bújörðum

Höfundur: Hörður Kristjánsson

Byggðastofnun hefur undirritað samstarfssamning við European Investment Fund (EIF) um aðild að ábyrgðakerfi sjóðsins á grundvelli s.k. COSME áætlunar sem hefur það að markmiði að bæta aðgengi lítilla og meðalstórra fyrirtækja að lánsfjármagni á samkeppnishæfum kjörum. 

EIF er sjóður í eigu Evrópubankans, Evrópusambandsins og annarra minni opinberra og einkaaðila.  Ísland á aðild að EIF í gegnum aðild að EES-samningnum.

Samningurinn veitir Byggðastofnun 50% bakábyrgð á lánum veittum úr tilteknum lánaflokkum.  Gerir þetta stofnuninni kleift að útvíkka þessa lánaflokka og mæta þar með lánsþörfum landsbyggðanna enn betur en áður.

Sérstakur lánaflokkur vegna kynslóðaskipta í landbúnaði

Þannig hefur verið stofnaður sérstakur lánaflokkur vegna kynslóðaskipta í landbúnaði, en ungum bændum hefur reynst erfitt að fjármagna kaup á bújörðum sökum hefðbundinnar 25% eiginfjárkröfu.  Mun ungum bændum nú standa til boða allt að 90% fjármögnun vegna kynslóðaskipta með tilkomu ábyrgðakerfis EIF.

Allt að 90% lán vegna verkefna í umhverfisvernd

Að sama skapi mun stofnunin bjóða allt að 90% lán vegna verkefna sem stuðla að umhverfisvernd.  Þar með talið nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa, bættrar orkunýtni, mengunarvarna, bættrar auðlindanotkunar, lífrænnar matvælaframleiðslu o.s.frv.

Þá mun viðkvæmum sjávarbyggðum standa til boða hagstæð lán til fiskvinnslu og útgerðar með allt að 75% veðsetningu í fiskiskipum með kvóta.

Til viðbótar verða núverandi lánaflokkar stofnunarinnar enn í boði á starfssvæði hennar. Má þar helst nefna sérstök lán til stuðnings atvinnurekstri kvenna sem notið hafa mikilla vinsælda og lán vegna nýsköpunar í landsbyggðunum.

Allar nánari upplýsingar um lána-flokka Byggðastofnunar má finna á vefsíðunni undir „Fjármögnun“, eða hjá Arnari Má Elíassyni, forstöðumanni fyrirtækjasviðs

Drómasýki í hrossum
Fréttir 13. maí 2024

Drómasýki í hrossum

Drómasýki er vaxandi vandamál í íslenskri hrossarækt. Til stendur að stofna star...

Steypan í Þverárrétt rannsökuð
Fréttir 13. maí 2024

Steypan í Þverárrétt rannsökuð

Úlfheiður Embla Ásgeirsdóttir framkvæmdi rannsókn á gæðum steypunnar sem notuð v...

Nýtt verknámshús byggt á Sauðárkróki
Fréttir 8. maí 2024

Nýtt verknámshús byggt á Sauðárkróki

Verknámshús Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra (FNV) á Sauðárkróki mun stækka ve...

Torfæra til styrktar björgunarsveitinni
Fréttir 7. maí 2024

Torfæra til styrktar björgunarsveitinni

Laugardaginn 11. maí fer hin árlega Sindratorfæra fram við Gunnarsholtsveg rétt ...

Nýtt erfðapróf fyrir bógkreppu í sjónmáli
Fréttir 6. maí 2024

Nýtt erfðapróf fyrir bógkreppu í sjónmáli

Í sjónmáli er nýtt erfðapróf til greiningar á arfberum erfðagallans sem veldur b...

Jarðgerð á lagernum
Fréttir 3. maí 2024

Jarðgerð á lagernum

Krambúðin í Mývatnssveit er nú með jarðgerðarvél fyrir lífrænan úrgang í verslun...

Fyrsti skipulegi raforkumarkaður landsins
Fréttir 2. maí 2024

Fyrsti skipulegi raforkumarkaður landsins

Opnuð hefur verið íslensk raforkukauphöll, sú fyrsta á Íslandi og með það að mar...

Vöktun íslenskra skóga viðamest
Fréttir 2. maí 2024

Vöktun íslenskra skóga viðamest

Á sviði rannsókna og þróunar hjá Landi og skógi eru fjölmörg verkefni og þeirra ...