Umhirða pottaplantna eru geimvísindi
Í öðrum þætti af hlaðvarpsþættinum „Ræktaðu garðinn þinn“ fjallar Vilmundur Hansen um pottaplöntur.
Hann stiklar á stóru í sögu pottaplöntunnar í Evrópu, en fyrstu heimildir um slík stofuprýði á Íslandi er frá árinu 1856. Í framhaldi bendir hann á góðar aðferðir við almenna umhirðu pottaplantna.
Ræktaðu garðinn þinn er samstarfsverkefni Facebook-síðunnar Ræktaðu garðinn þinn og Hlöðunnar, hlaðvarps Bændablaðsins, sem nálgast má á öllum helstu streymisveitum.
Hægt er að hlusta á þáttinn undir.