Unnsteinn Snorrason, staðgengill framkvæmdastjóra
Unnsteinn Snorrason hefur verið ráðinn staðgengill Vigdísar Häsler, framkvæmdastjóra Bændasamtaka Íslands í kjölfar brotthvarfs Kára Gautasonar.
Mun Unnsteinn taka við verkefnum Kára þar sem frá var horfið, ásamt því að sinna þeim verkefnum sem voru fyrir á hans borði.
Ásgeir Helgi Jóhannsson, lögfræðingur, er nýr starfsmaður Bændasamtakanna.