Notkun eykst þrátt fyrir hættu á ónæmi
Í nýrri umfjöllun í Nature segir að notkun á sýklalyfjum í landbúnaði sé mun meiri en hingað til hefur verið talið og að notkunin eigi eftir að aukast enn meira til ársins 2030.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur varað við að sýklalyfjaónæmi sé ein helsta ógnunin við lýðheilsu í heiminum í dag.
Mikil notkun á sýklalyfjum í landbúnaði er talin vera meginástæða aukinnar bakteríusýkingar í mönnum sem ekki er hægt að meðhöndla með sýklalyfjum. Í greininni segir að þrátt fyrir að sýklalyf geti reynst nauðsynleg til að meðhöndla sýkingar í búfé þá sé misnotkun lyfjanna algeng í þeim tilgangi að flýta fyrir og auka vöxt þeirra og að koma í veg fyrir sýkingar í búfé sem alið er við ófullnægjandi aðstæður og mikil þrengsli.
Reglur ekki virtar
Stjórnvöld víða um heim, þar á meðal Bandaríki Norður-Ameríku og flest lönd í Evrópu, hafa bannað að nota sýklalyf sem vaxtarörvandi í landbúnaði en illa hefur gengið að framfylgja því banni. Meginástæða þess er að framleiðendur lyfjanna og bændurnir sem þau nota segja notkun þeirra nauðsynlega til að fyrirbyggja sýkingar.
Illa hefur gengið að afla gagna um raunverulega notkun á sýklalyfjum í landbúnaði þar sem fjöldi landa hvorki safnar upplýsingum um hana eða gefur út tölur um notkunina.
Auk þess sem megnið af tölum um notkun sýklalyfja í landbúnaði eru taldar of lágar og því ómarktækar.
Aukin notkun
Samkvæmt því sem segir í Nature er Kína það land í heiminum sem notar langmest af sýklalyfjum, í tonnum talið, í landbúnaði. Brasilía, Bandaríki Norður-Ameríku, Indland og Austurríki fylgja svo í kjölfarið ásamt Taílandi, Íran, Mexíkó, Rússlandi og Pakistan. Áætlanir gera ráð fyrir að notkun sýklalyfja í landbúnaði eigi eftir að aukast í öllum þessum löndum um 1 til 33% til ársins 2030 að Íran undanskildu þar sem notkunin er talin munu dragast saman um 1%.
Nýir útreikningar benda til að sýklalyfjanotkun í Afríku sé allt að tvöfalt meiri en hingað til hefur verið talið og 50% meiri í Asíu en gefið hefur verið upp.