Farmall – 70 ára á Íslandi
Eins og kom fram í síðasta Bændablaði komu fyrstu Farmall A dráttarvélarnar til landsins árið 1945 eða fyrir 70 árum með flutningaskipinu Gyda.
International Harvester sem framleiddi Farmall var um tíma einn stærsti dráttarvélaframleiðandi í Bandaríkjunum enda fyrirtækið duglegt við að sameinast og yfirtaka aðra framleiðendur. IH var svo aftur tekið yfir af Case árið 1984.
Mogul og Titan
Til ársins 1910 framleiddi IH stórar og klunnalegar dráttarvélar sem vógu allt að 10 tonn og seldust ekki nema í meðallagi. Árið 1910 hóf IH aftur á móti framleiðslu á minni og liprari vélum sem kölluðust Mogul og Titan og seldust í nokkur þúsund eintökum. Líkt og aðrir dráttarvélaframleiðendur á þessum tíma var samkeppnin við Fordson traktorana erfið.
Sjö ára hönnun
Árið 1924 var fyrsti Farmallinn framleiddur. Vinsældir hans jukust hratt enda um alhliða traktor að ræða sem hentaði fyrir minni og meðalstór býli. Farmallvélar voru grábláar að lit með rauðum hjólum til ársins 1936. Eftir það var hægt að fá appelsínugulan eða alrauðan Farmall. Hugmyndin með að hafa traktorana í skærum litum var að menn gætu séð þá langt að og vitað hvaða tegund þeir væru.
Annar mest seldi traktorinn í Bandaríkjunum
Farmall H sem var í framleiðslu frá 1939 til 1954 er önnur mest selda dráttarvélin í sögu Bandaríkjanna og seldist í rúmlega 420.000 eintökum. Einungis Ford hefur selst betur, rúmlega 524.000 stykki.
Farmallinn kemur til Íslands
Farmall Cub nafnið varð frægt á Íslandi við upphaf vélvæðingar í landbúnaði enda mikill fjöldi slíkra véla í sveitum landsins um miðja síðustu öld.
Þóroddur Már Árnason, vélvirki í Neskaupsstað, hefur tekið saman gögn um fyrstu Farmallana sem komu til landsins. Í fyrstu sendingunni árið 1945 voru 25 vélar með þyngdarklossum og reimskífu og kostuðu vélarnar 5.960 krónur. Öllum vélunum fylgdi sláttuvél og flestum plógur. Rúmum helmingi vélanna fylgdi diskaherfi. Plógnum var lyft með pústinu, og var kúturinn einatt notaður til að lyfta heyýtum sem smíðaðar voru á marga Farmall A.
Með þessum fyrstu Farmall A dráttarvélum hófst dráttarvélavæðing íslenskra sveita. Næsta sending, 50 eintök, kom í apríl sama ár. Alls flutti Sambandið inn 174 Farmallvélar þetta ár. Alls voru fluttar inn 474 Farmall A dráttarvélar á árunum 1945–1948.
Framleiðsla hafin á ný
Framleiðslunni á vélum með Farmall-nafninu var hætt árið 1981. IH neyddist til að selja landbúnaðardeild sína árið1984 og rann hún saman við Case ári síðar og fylgdi Farmall-nafnið með í kaupunum. Case hefur endurvakið nafnið og hafið framleiðslu á traktorum sem bera nafnið Farmall aftur.