Fiat – stærsti dráttavélaframleiðandi í heimi
Fabbrica Italiana di Automobily Torino (Fiat) var stofnað á Ítalíu árið 1899 til að framleiða bifreiðar. Reksturinn gekk vel og áður en langt um leið var fyrirtækið farið að framleiða vöruflutningabíla, flugvélar, lestarvagna og bátavélar.
Árið 1910 hóf fyrirtækið hönnun á fyrsta ítalska traktornum að áeggjan stjórnvalda en vegna heimsstyrjaldarinnar fyrri hófst framleiðsla frumgerðarinnar ekki fyrr en átta árum seinna. Fyrsti traktorinn kallaðist Fiat 702 og var með fjögurra strokka vél og 30 hestöfl. Vélin var reyndar sú sama og í vöruflutningabílunum sem fyrirtækið framleiddi á sama tíma.
Traktorinn þótti bæði sterkur og lipur. Endurbætt útgáfa Fiat 702B var sett í framleiðslu árið 1924. Vélin í þeim traktor var 35 hestöfl.
Hundrað þúsund traktorar á ári
Vinsældir 702 og 702B voru miklar og talsvert af þeim flutt til annarra landa í Evrópu og Norður- og Suður-Ameríku þrátt fyrir að vera allt að fimm sinnum dýrari en Fordson traktorarnir.
Árið 1927 hófst framleiðsla á Fiat 700 týpunni sem var minni og 30 hestöfl og hægt að velja milli þess hvort 700 týpan gengi fyrir bensíni eða dísil. Velgengni Fiat 700 var gríðarleg og árið 1929 var framleiðsla þeirra komin í 1000 traktora á ári sem var mikið á þeim tíma en smámunir miðað við dráttarvélaframleiðslu Fiat í dag sem eru um 100.000 traktorar á ári.
Fyrsti beltatraktorinn, Fiat 700C, leit dagsins ljós 1932.
Lifði stríðið af
Í framhaldi af velgengni fyrirtækisins hóf stjórn þess að kaupa upp samkeppnisaðilana sem hétu nöfnum eins og Ansaldo, Ceriano, SPA og OM.
Fiat lifði af heimsstyrjöldina seinni þrátt fyrir að margar verksmiðjur fyrirtækisins hafi farið illa í sprengjuárásum. Sala á dráttarvélum fór hægt af stað eftir stríðið og seldi fyrirtækið eingöngu 200 traktora árið 1945. Í framhaldi af því einbeitti það sér að framleiðslu smábíla og ekki löngu seinna litlum traktorum, Fiat 600, enda flest býli á Ítalíu smá á þeim árum.
Á örfáum árum tókst fyrirtækinu að auka framleiðslu sína á dráttarvélum verulega og árið 1953 var framleiðslan komin í 12.000 traktora á ári og 20.000 árið 1958. Árið 1950 hóf Fiat samvinnu við franska fyrirtækið SIMCA og hóf framleiðslu á dráttarvélum sem kölluðust SOMCA og nutu mikilla vinsælda í Austur-Evrópu og Argentínu. Árið 1980 hafði Fiat framleitt hálfa milljón traktora og var með 13% markaðshlutdeild á heimsvísu. Árið 1991 tók fyrirtækið yfir Ford-New Holland og tryggði sig enn frekar í sessi. Í dag á Fiat CNH Global sem meðal annars fer með ríkjandi hlut í Case, Steyr og New Holland.
Svo segja Ítalir að stærð skipti ekki máli.