Arnar Árnason kjörinn formaður Landssambands kúabænda
Nú rétt fyrir hádegi var tilkynnt um niðurstöðu í formannskjöri Landssambands kúabænda (LK) á Hótel Sögu. Arnar Árnason frá Hranastöðum var kjörinn formaður og hlaut 18 atkvæði en mótframbjóðandi hans Jóhann Nikulásson frá Stóru-Hildisey 15.