Tilgangurinn er að Eyjafjarðarsveit verði mataráfangastaður í heimsklassa
„Tilgangurinn er að gera Eyjafjarðarsveit að mataráfangastað í heimsklassa,“ segir Karl Jónsson, sem ásamt Sigríði Róbertsdóttur og Einari Erni Aðalsteinssyni hefur unnið að undirbúningi verkefnis sem ber nafnið Matarstígur Helga magra.