Kleinan lifir góðu lífi í íslensku samfélagi
„Ég fékk þessa skrýtnu hugmynd að gefa út bók um kleinur fyrir þremur árum en á þeim tíma hafði ég sjálf aldrei steikt kleinur en var eins og flestir Íslendingar mikill aðdáandi kleina,“ segir Ingunn Þráinsdóttir, höfundur bókarinnar Bestu kleinur í heimi.
Ingunn, sem er myndlistarkona og grafískur hönnuður á Egilsstöðum, hefur safnað kleinuuppskriftum um land allt og nú fyrir jólin er bók með öllum herlegheitunum væntanleg. Alls eru 57 uppskriftir í bókinni, gott sýnishorn af heimagerðum íslenskum kleinum. Auk uppskriftanna, sem eru hver annarri girnilegri, er að finna í bókinni ýmsan skemmtilegan fróðleik um kleinur. Bókin verður prentuð í Héraðsprenti á Egilsstöðum.
Kleinur úr eldhúsi mömmu og ömmu gleymast seint
Ingunn segir að kleinan lifi góðu lífi í íslensku samfélagi og í flestum matvöruverslunum sé hægt að næla sér í poka af fjöldaframleiddum kleinum, auk þess sem bakarar um land allt bjóði upp á ágætiskleinur. „Þrátt fyrir að framboðið sé ágætt þá gleymast seint kleinurnar sem urðu til í eldhúsinu hjá mömmu og ömmu,“ segir Ingunn.
„Það eru til alls konar uppskriftir og sérviskur ef þannig má komast að orði. Þannig að ég ákvað að auglýsa eftir uppskriftum og það stóð ekki á svörum, fólk um land allt deildi með mér uppskriftum, sögum, bröndurum, samfélagsmiðlaskilaboðum og myndum. Það var algjörlega yndisleg upplifun að sjá áhugann og ástríðuna,“ segir hún og bætir við að hver og ein uppskrift hafi að sjálfsögðu verið talin besta uppskrift að kleinum sem til er.
Uppáhaldið með Royal karamellubúðingi
Í bókinni má einnig finna ýmislegt um sögu kleinunnar, aðferð og áhöld. „Eftir að vinnuferli bókarinnar hófst tók ég mig til við að prófa að steikja kleinur en hef reyndar ekki enn prófað allar uppskriftir sem finna má í bókinni, en uppáhaldsuppskriftin er líklega þessi með Royal karamellubúðingnum,“ segir Ingunn.
Hún segir kleinubakstur ofur einfaldan og skemmtilegan, „ég tala nú ekki um þegar börnin á heimilinu taka þátt, spennan við að smakka nýsteiktar kleinur er alltaf jafnmikil og eins gott að hafa ískalt mjólkurglasið klárt á kantinum.“
/MÞÞ