Krubbur sigraði en Askur með besta undirvöxtinn
Fjáreigendafélag Húsavíkur stóð fyrir hrútasýningu á Mærudögum sem er bæjarhátíð sem haldin er árlega á Húsavík í lok júlí.
Hrúturinn Krubbur frá Fjárræktarbúinu Grobbholti á Húsavík sigraði með miklum yfirburðum. Í máli dómaranna kom fram að Krubbur væri sérstaklega holdmikill hrútur með einstaklega góð læri, malir, hrygg og frampart.
Krubbur frá Grobbholti.
Tveir áhorfendur voru valdir til að velja þann hrút sem skartaði fallegasta pungnum. Áslaug Guðmundsdóttir og Hróðný Lund voru kallaðar upp og eftir ítarlega skoðun völdu þær hrútinn Ask með besta undirvöxtinn.
Alls voru sýndir sjö fallegir hrútar og voru tveir þekktir sauðfjárbændur úr Suður-Þingeyjarsýslu fengnir til að dæma keppnina, þeir Sigurður Ágúst Þórarinsson úr Skarðaborg og Guðmundur Ágúst Jónsson úr Fagraneskoti. Sveitarstjóri Norðurþings, Kristján Þór Magnússon, sá svo um að lýsa því sem fram fór.
Í lok keppninnar fengu eigendur Krubbs bikar í verðlaun. Það var ungur, áhugasamur bóndi, Baldur Freyr Skarphéðinsson, sem tók við verðlaunum fyrir hönd Grobbholts.
Karlakórinn Hreimur kom einnig fram á hrútasýningunni og sungu nokkur lög, auk þess sem konur úr handverkshópnum Kaðlín sýndu handverk, það er íslenskar lopapeysur.