Ceasar-salat, sætar kartöflur og súkkulaðisnjóboltar
Höfundur: Bjarni Gunnar Kristinsson
Gott er um þessar mundir að byrja að skera niður þungar máltíðir fyrir jólaátið. Það er fljótlegt og auðvelt að henda í Caesar-salat sem sumir halda að sé nefnt eftir Julius Caesar. Það er hins vegar mesti misskilningur því Caesar Cardini, frægur veitingamaður, á heiðurinn af þessum rétti, sem fyrst var gerður í Tijuana í Mexíkó árið 1924 þegar þjóðhátíð Bandaríkjamanna 4. júlí stóð sem hæst. Allt hráefnið var uppurið í eldhúsinu og það þurfti að útbúa rétt fyrir fyrirmennin úr því sem eftir var í eldhúsinu.
Upprunalega uppskrift Cardini var einungis romaine-salat , hvítlaukur, brauðteningar („croutons“, dagsgamalt steikt brauð), Parmesan-ostur, soðið egg, ólífuolía og Worcestershire-sósa. Hann var sagður vera á móti að setja ansjósur í sósuna, sem er oft notað fyrir aukna bragðfyllingu í dressinguna, og hélt því fram að Worcestershire-sósa sé fullnægjandi til að fá aukið bragð.
Í seinni tíð hefur tíðkast að gera salatið með kjúklingi og jafnvel annað grænmeti sett með. Það væri því kannski ráð að gera smá hlaðborð af meðlæti og láta fólk búa til sitt eigið Caesar-salat úr því og nota jafnvel óskorin romaine-lauf sem taco-skál, til að gera salatvefju úr.
Caesar-salat taco
Þetta er upprunalega útgáfan af salatinu sem er orðið vinsælasta salat í heimi.
- 1 egg
- 1 rif hvítlaukur
- smá skvetta Worcestershire-sósa
- ferskur sítrónu- eða limesafi, eftir smekk
- góður slatti Parmesan-ostur
- 2 sneiðar brauðteningar
- salt og ferskur pipar
- 50 ml ólífuolía
- 1 tsk. Dijon sinnep
- 1 tsk. balsamic
Aðferð
Hrærið saman dressingunni með forsoðna egginu og setjið á disk með Parmesan-ost á milli laga, framreiðið með brauðteningum.
Sætar kartöflur og sykurpúðar
– þakkargjörðarmatur
Það eru ýmsir skrítnir réttir borðaðir yfir þakkargjörðarhátíðina í Bandaríkjunum. Eitt af því sem er með því algengara er sætar kartöflur og bakaðir sykurpúðar. Hægt er að gera góðan rétt með kjúklingi og sykurpúðum, nota bakaðar sætar kartöflur eða ofnbakaðar gulrætur eins og hér er gert í anda þakkargjörðarmáltíðarinnar með kjúkling í stað kalkúns.
- 2–4 kjúklinga bringur
- 1 stk. kardimommubaun eða ögn malað krydd
- 1 rif hvítlaukur
- 1 stk. lárviðarlauf
- 1 stk. stjörnuanís
- 4 svört piparkorn
- 1 tsk. sojasósa
- Fyrir heimagerða ostsykurpúða
- 100 ml mjólk
- 1 mozarella-kúla eða mjúkur geitostur
- 1 msk fljótandi glúkósi eða agavesíróp
- salt
- 6 blöð gelatín
- 2 egg hvítur
- 50 g flórsykur
- (Líka hægt að nota keypta sykurpúða eins og gert er í Bandaríkjunum).
Fyrir salatið
- 20 g blönduð salatblöð
- fersk krydd að eigin vali
- salt og pipar
- 15 ml ólífuolía
- 5 ml sítrónusafi
Aðferð
Hrærið saman mjólkina, geitaostinn/mozarellakúlurnar, glúkósa og saltið. Setjið í pott til að hita upp og leysið ostinn upp. Mýkið matarlímið (gelatínið) í köldu vatni. Þegar það er mjúkt, hristið þá af megnið af vatninu, hrærið og leysið upp í heitri mjólkurblöndunni. Eitt blað í einu. Vinnið saman með handtöfrasprota eða í blandara og látið kólna niður í um 50 gráður. Þeytið eggjahvítur, setjið í flórsykur og þegar eggjahvíturnar eru orðnar loftkenndar er þeim hellt mjög hægt saman við geitamjólkur/ostablönduna og setjið á matarfilmu þegar matarlímið hefur tekið sig í hrærivélinni.
Gott er að skera þetta hálffrosið og nota eins og ost til að fá gljáa á grænmeti eða fiskrétti.
Veltið gulrótum upp úr smá matarolíu og bakið í ofni við 180 gráður í 20 mínútur. Bætið kjúkling við ásamt kryddi. Í lok eldunartímans er kryddað með smá sojasósu eða salti, bætið sykurpúðum og framreiðið með salati sem búið er að velta í sítrónusafa og ólífuolíu.
Vegan súkkulaðisnjóboltar
- 90 g gott kakóduft
- 400 g sykur
- 110 ml kókosfita
- 190 ml fínt hnetusmjör og tahini sesam paste (eftir smekk)
- 1 tsk. vanilluþykkni
- 250 g hveiti
- 2,5 tsk. lyftiduft
- 0,5 tsk. salt
- 2 msk. piparmintubrjóstsykur (mulið sælgæti)
Sykurhúð
- 100 g fínt duftaður brjóstsykur
- 60 g flórsykur
Aðferð
Blandið saman í skál hveiti, salti og lyftidufti. Setjið til hliðar.
Í miðlungsstórri skál eða í hrærivél hrærið saman kakódufti, sykri, hnetusmjöri, sesampaste (tahini), kókosolíu og þykkni þar til þessu hefur verið vel blandað saman. Hrærið muldum piparmintubrjóstsykri (eða jólastöfum). Bætið hveitiblöndunni saman við þar til það hefur alveg blandast saman.
Setjið deigið í plastfilmu og látið hvíla í 4 klukkustundir.
Hitið ofninn í 180 gráður. Setjið á tvær bökunarplötur með smjörpappír. Gerið kúlur og veltið upp úr sykri.
Veltið upp muldum brjóstsykri (eða venjulegum sykri) og síðan í flórsykri, til að mynda snjólagið.
Bakið í 12–13 mínútur (smákökurnar skulu vera svolítið of lítið bakaðar). Takið úr ofni og látið kólna í 2–3 mínútur áður en gott er að setja á grind til að láta þær kólna alveg.