Stefna á hörkuferð um magnað landbúnaðarsvæði í Kanada
Höfundur: Hörður Kristjánsson
Snorri Sigurðsson, ráðunautur í Danmörku, mun verða fararstjóri í ferð íslenskra bænda með ferðaskrifstofu Guðmundar Jónassonar (GJ Travel) á landbúnaðarsýningu í Kanada í september.
Um er að ræða landbúnaðarsýninguna í Woodstock í Ontariofylki sem er stærsta sýning sinnar tegundar í Kanada.
„Já, þetta verður hörkuferð og þarna verður farið um magnað landbúnaðarsvæði í Kanada,“ segir Snorri.
Landbúnaðarsýningin í Woodstock
„Stóri punkturinn er auðvitað landbúnaðarsýningin í Woodstock í Ontariofylki sem er stærsta sýningin í Kanada og afar vinsæl.“
Þetta er tuttugasta og þriðja árið sem þessi sýning er haldin og mun sýningin sjálf standa yfir dagana 12. til 15. september en ferðin með GJ Travel stendur yfir frá 11. til 17. september.
„Þetta er svona sýning sem er blanda af hefðbundinni landbúnaðarsýningu og svo sýningu sem er með alls konar aðra áhugaverða hluti sem sýndir eru. Ég hef eignast marga kunningja í gegnum hálflanga starfsævi og hef fengið nokkra flotta heimamenn með mér í að skipuleggja þetta, svo faglegt innihald standist þau gæðaviðmið sem ég hef alltaf í hávegum í ferðum sem ég kem að.“
Í heimsókn til kanadískra bænda
„Við munum því að sjálfsögðu heimsækja marga bændur á svæðinu, bæði með kýr og holdagripi, en einnig fara í háskólann í Guelph en þar eru stundaðar öflugar rannsóknir sem verður áhugavert að fræðast um.
Þá verður tími til að njóta, bæði í Toronto og auðvitað við sjálfa Niagarafossa, sem eru á mörkum New York-ríkis í Bandaríkjunum og Ontario-fylkis í Kanada. Ég hef ferðast víða en aldrei komið að Niagarafossum og hlakka mikið til þess að sigla upp að þeim. Þar sem fossaskoðun er vel utan míns fagsviðs verður fengin aðkeypt leiðsögn á þessum stað til þess að gefa ferðafélögunum eins góða upplifun og mögulegt er,“ segir Snorri Sigurðsson.
Það mun kosta 232.000 krónur fyrir manninn í þessa ferð og innifalið er flug, flugvallaskattar, gisting með morgunverði og kvöldverði fyrsta kvöldið. Einnig allur akstur og skoðunarferðir og fararstjórn undir tryggri handleiðslu Snorra Sigurðssonar.
Skráning í ferðina hefst 1. júlí
Hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið autgoing@gjtravel.is.
Einnig er hægt að fá upplýsingar um ferðina á vefslóðinni http://www.ferdir.is/pakkaferdir/landbunadarsyning-til-kanada.